Slökkvitækjaþjónustan hjá Ólafi Gíslasyni & co. hf.
Hleðsla og þjónusta slökkvitækja
Við viljum vekja athygli á slökkvitækjaþjónustu okkar. Við tökum á móti flest öllum gerðum slökkvitækja til yfirferðar og eftirlits. Við yfirförum og umhlöðum slökkvitæki yfirleitt á tveimur sólarhringum en ástæðan fyrir því að það tekur tvo sólarhringa er sú að við viljum fylgjast með slökkvitækinu eftir umhleðslu í minst sólarhring.
Við bjóðum upp á þá þjónustu sem við nefnum skiptitæki þ.e. ef við eigum samskonar slökkvitæki tilbúið á lager þá skiptum við á slökkvitækjum. Þettar sparar komu aftur til okkar til að sækja slökkvitæki.
Sem dæmi um staðgreiðsluverð á yfirferð.
Yfirfarið 6 kg. ABC Duftslökkvitæki (venjulegt heimilisslökkvitæki) kr. 1.978,00
Yfirfarið 9 til 10 l. Vatnsslökkvitæki kr. 1.978,00
Yfirfarið 6 til 10 l. Léttvatnsslökkvitæki kr. 1.978,00
Yfirfarið 2 kg. Kolsýruslökkvitæki kr. 1.978,00
Sem dæmi um staðgreiðsluverð þjónustu á umhleðslu eða hleðslu.
Umhlaðið 2 kg. ABC Duftslökkvitæki (bílslökkvitæki) kr. 4.333,00
Umhlaðið 6 kg. ABC Duftslökkvitæki (venjulegt heimilisslökkvitæki) kr. 5.097,00
Hlaðið 6 til 10 l. Vatnsslökkvitæki kr. 4.333,00
Hlaðið 6 til 10 l. Léttvatnsslökkvitæki kr. 5.218,00
Hlaðið 2 kg. Kolsýruslökkvitæki kr. 4.701,00
Eins og áður sagði þá þjónustum við allar gerðir slökkvitækja svo framarlega sem það er hægt, viðskiptavininum hagstætt, slökkvitækið ekki of gamalt eða slökkvitækið illa útlítandi. Ef slökkvitæki er illa farið og við sjáum að það borgar sig ekki að eiga við það komum við til móts við viðskiptavini okkar með hagstæðu verði á nýju eða nýlegu slökkvitæki.
Allar vélar eru nýjar og viðurkenndar. Starfsmenn okkar eru réttindamenn og hafa öðlast mikla reynslu.
Viðurkenning Vinnueftirlits á þrýstibúnaði dagsett 4. júní 2009
Viðurkenning Brunamálastofnunar dagsett 5. júní 2009
Starfsleyfi Siglingastofnunar dagsett 15. desember 2009
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
.....Slökkvitæki, slökkvitækjaþjónusta, reykskynjarar, eldvarnateppi, brunaslönguhjól, gaskynjarar, kolsýrlingsskynjarar, fellistigar, keðjustigar, lyfjaskápar, neyðarljós, neyðarmerki.....







