Við höfum frá miðju ári 1990 boðið og selt slökkvibifreiðar. Fram til dagsins í dag, höfum við selt alls 38 slökkvi og björgunarbifreiðar byggðar hjá Rosenbauer (Egenes) AS í Flekkefjörð í Noregi og ISS-Wawrzaszek í Póllandi. Stór hluti þess lausa búnaðar sem er í bifreiðunum er frá okkur. Einnig höfum við selt verðmætabjörgunar- gáma, slöngugáma og vatnstanka frá sömu aðilum. Sjáið frekari upplýsingar undir hnappnum slökkvibifreiðar til vinstri.
ISS-Wawrzaszek í Bielsko-Biala í Póllandi byggir eftir evrópskum stöðlum og eru flestar bifreiðar byggðar eftir EN 1846-1 staðli. Sá búnaður sem er í bifreiðinum er evrópskur og af þeim gerðum sem vel eru þekktar hérlendis eins og t.d. Ruberg dælur (sænskar) sem eru m.a. í slökkvibifreiðum á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri, Þórshöfn, Fáskrúðsfirði, Eskifirði, Egilsstöðum, Selfossi, Ísafirði, Ólafsvík, Borgarnesi, Sauðárkróki, Árnesi, Laugarvatni, Þorlákshöfn og Reykholti Biskupstungum. Dælur þær sem við höfum lagt áherslu á að selja í bifreiðunum og höfum selt eru sambærilegar við þá dælu sem er í stærri slökkvibifreiðinni á Reykjavíkurflugvelli sem við seldum.
ISS-Wawrzaszek er stærsti framleiðandi slökkvibifreiða í þessum hluta Evrópu. Framleiða allar gerðir slökkvibifreiða og eins gáma fyrir slökkvilið nema körfu og stigabifreiðar. Fyrirtækið var stofnað 1988 og eru starfsmenn þess 350 talsins. Á ári hverju eru seldar um 250 til 500 bifreiðar og markaðurinn í Evrópu og svo Asíu.
Hér koma svo teikningar af ýmsum gerðum slökkvibifreiða.
Vekjum athygli á að teikningar þessar eru eign ISS-Wawrzaszek og öll eftirprentun eða eftiröpun óleyfileg.
Egenes Brannteknikk AS (áður Rosenbauer AS) í Flekkefjörd í Noregi er samstarfsaðili Rosenbauer International í Leonding Linz Austurríki. Frá árinu 1992 hafa 25 slökkvibifreiðar verið byggðar af þessum framleiðanda fyrir Íslendinga. M.a. voru EBÍ útboðs slökkvibifreiðarnar byggðar þar. Sérhæfing er mikil og er framleiðslan á ári um 30 bifreiðar. Egenes Brannteknikk er umboðsaðili Metz stigabifreiða.
Stór hluti búnaðar í bifreiðum Egenes Brannteknikk eins og brunadælur, stýribúnaður, lokar, stútar ofl. er framleitt af Rosenbauer International. Ef búnaður og tæki eru ekki framleidd af Rosenbauer er um að ræða aðra þekkta framleiðendur.
Eins höfum við flutt inn slökkvibifreiðar beint frá Rosenbauer International í Leonding Linz Austurríki.
Ólafur Gíslason & Co hf. Eldvarnamiðstöðin er 89 ára gamalt fyrirtæki og höfum við sinnt þjónustu við slökkviliðin í landinu undanfarin 38 ár en innflutningi og þjónustu á vörum tengdum brunavörnum í meira en 60 ár. Á síðastliðnum 20 árum höfum við flutt inn og selt nánast allar nýjar slökkvibifreiðar til landsins eða 37 bifreiðar og eins tvær sjúkrabifreiðar.
Við teljum okkur búa yfir mikilli þekkingu á þessu svið og höfum valið til samstarfs áðurnefnda yfirbyggjendur. Það er að vel skoðuð máli en við höfum fylgst með þessum fyrirtækjum um nokkuð langt skeið. Við fullyrðum að verð er mjög hagstætt, gæði mikil og búnaður frá V-Evrópu og að auki þekktur hérlendis. Eins er byggt eftir þeim stöðlum sem við þekkjum. Við höfum einnig látið byggja bifreiðarnar eftir þeim kröfum sem gerðar eru hérlendis m.a. hvað varðar dælu frágang og lagnir.
Ólafur Gíslason & co. hf. hefur einnig unnið ýmis verkefni varðandi slökkvibúnað og slökkvistörf fyrir fyrirtæki og stofnanir svo sem fyrir, Alcan, Alcoa, Norðurál, Elkem, Flugmálastjórn, Reykjavíkurhöfn og Landhelgisgæsluna.



