27. desember 2005.
Fyrir örfáum mínútum var skrifað formlega undir samning um kaup á slökkvibifreið sem staðsett verður á flugvellinum á Egilsstöðum en bifreiðin er í eigu Flugmálastjórnar og Brunavarna á Héraði og kemur í stað slökkvibifreiðar sem við seldum þessum aðilum árið 1997 á flugvöllinn.
Frekari upplýsingar um bifreiðina munu birtast á nýju ári á heimasíðu okkar en hér er undirvagn af Scania gerð 6x6 sjálfskipt með áhafnarhúsi fyrir allt að sex menn. Dæla er af gerðinni Ruberg R40/2.5 og úðabyssur af gerðinni Akron Brass. Bifreiðin verður smíðuð í Póllandi af ISS-Wawrzaszek eins og allar þær nýjar slökkvibifreiðar sem seldar hafa verið til landsins í ár.

| Til hamingju Flugmálastjórn og Brunavarnir á Héraði
|
|
Hér eru samankomnir aðilar samingsins í húsnæði Ríkiskaupa. Frá vinstri er Magnús Geir
Sigurgeirsson frá Rískiskaupum, Jón Baldvin Pálsson frá Flugmálastjórn, Benedikt Einar Gunnarsson frá Ólafi Gíslasyni & Co hf., Sævar
Sigbjarnarson formaður stjórnar Brunavarna á Héraði og Bragi Pálmason frá Flugmálastjórn. Myndina tók Benjamín Vilhelmsson frá Ólafi
Gíslasyni & Co hf.
|
| Sjá aðrar fréttir um bifreiðina |
| Opnun útboðs 18. nóv 2005 |
| Tilkynning frá Ríkiskaupum 9. des.
2005 |
| Sjá teikningu 16. ág. 2006 |
| Myndir 31.okt. 2006 |
| Teikningar 6. nóv. 2006 |
| Frétt frá 11. des 2006 |
| Myndir frá 10. jan 2007 |