Þessar sagir eru sérstaklega gerðar fyrir slökkvilið og björgunarsveitir og sérstaklega áreiðanlegar við slæmar aðstæður. Hér fyrir neðan nefnum við eina gerð sem algengust er hérlendis en fleiri eru fáanlegar og hvetjum við áhugasama að fara á heimasíðu Cutters Edge.
Cutters Edge keðjusög af gerðinni CE-2171RS
Keðjan er með varnarhlíf stillanlega til að stilla dýpt þess sem saga á og verja notanda. Sögunardýptin er rúmir 20 sm. eða 20". Stýring úr heilu stáli sem stýrir sögun á sem skemmstum tíma.
Hemill er á keðju sem stöðvar keðjuna á 1/20 úr sekúndu. Verði hún fyrir höggum stöðvast keðjan. Stillanlegt.
Loftsíun er fjögurra þrepa svo vinna megi með sögina við verstu aðstæður í reyk og sóti. Allt viðhald er einfalt og eftirlit er auðvelt og auðvelt að komast að.
Auðvelt að setja í gang. Rofi alltaf á ON til að koma í veg fyrir að blöndungur yfirfyllist. Innsog einfalt og stillist fast strax. Tankar fyrir smurolíur fyrir keðju og vél eru hafðir það stórir svo koma megi í veg fyrir að sögin sé keyrð þurr. Fyrr verður hún eldsneytislaus.
Handfang stamt og sérstök vörn frá sagi eða spænum til hlífðar notanda og vél. Hægt er að létta á vél til að auðvelda gangsetningu. Í handfangi eru demparar til að draga úr höggum.
Vélin er rúm 5 hestöfl eins strokka tvígengis vél. Þyngd um 10 kg. Sjá tækniupplýsingar.
Fleiri gerðir eru fáanlegar og við hvetjum ykkur til að skoða heimasíðu Cutters Edge.
.....Slökkvitæki, slökkvitækjaþjónusta, reykskynjarar, eldvarnateppi, brunaslönguhjól, gaskynjarar, kolsýrlingsskynjarar,
fellistigar, keðjustigar, lyfjaskápar, neyðarljós, neyðarmerki.....


