Hitamyndavélar

  Hér er örstutt kynning á hitamyndavélum, hugtökum og notkun með áherslu á Evolution 5200 hitamyndavélina sem er kominn á markaðinn frá MSA. Þessar

MSA hitamyndavélar

 

Hér er örstutt kynning á hitamyndavélum, hugtökum og notkun með áherslu á Evolution 5200 hitamyndavélina sem er kominn á markaðinn frá MSA. Þessar vélar eru einstaklega vandaðar, meðfærilegar og öruggar í notkun. Fyrir ekki alllöngu kom á markaðinn Evolution 5000 vélina og bendum við ykkur sem áhuga hafa á að lesa frétt þar um. 

Tæknin er löngu þekkt eða yfir 40 ára gömul og nýtist nú slökkviliðum til lífbjörgunar, björgun félaga, flýtir leit, eykur öryggi við leit og gerir allt björgunarstarf öruggara og styttir slökkvistarf. Glóðabruni finnst fyrr, hitamyndun kemur fram, leit að hitauppsprettu utanfrá og öruggari innkoma. Hitamæling, eykst eða minnkar hitinn.

Það er aðeins eitt slökkvilið í landinu sem notar hitamyndavél en þessi tækni er að ryðja sér til rúms um allan heim og eru seldar um 100 vélar í Svíþjóð en MSA vélin á þar 95% markaðsins.  Evolution 5000 vélin var mjög svo fullkomin en nú er komin á markað Evolution 5200 vél sem hefur marga eiginleika fram yfir hina. Má þar nefna að nýr hitanemi er í vélinni sem breytir hitasviði en þau eru tvö svo auka megi nákvæmni myndar, meiri hita vörn og nýir fylgihlutir eins og sólskyggin og festisnúra svo sá sem er með vélina geti notað báðar hendur. Vélarnar eru vatnsvarðar (IP67), fljóta á vatni,  höggþolnar, þola að falla úr 2ja m. hæð. Þær fylgja þeim stöðlum sem mögulegt er þ.e. sitt lítið úr NFPA og EN en það er ekki til neinn sérstakur staðall yfir slíkar vélar. Sjá bækling um kosti vélarinnar. Hér eru tækniupplýsingar um 5200 vélina á íslensku og ensku.

Hér eru svo leiðbeiningar um notkun Evolution 5200 vélarinnar.

Ýmiss annar áhugaverður búnaður er frá MSA eins og MSA Gallet hjálma, MSA AirMaXX reykköfunartæki, Firefly II reykkafaraviðvaranir ofl. Ný gerð af Gallet hjálmi kemur á markað um áramótin 2005/2006. 

Hér er svo bæklingur á sænsku yfir Evolution 5200 vélina og þann búnað sem hægt er að fá með henni eins og myndbands- upptökubúnað, sendir og móttakara. 

 



 
 

Skráning á póstlista

Svæði