
Frá Dyno Nobel ASA getum við boðið nokkrar gerðir af sprengiþræði og primerum. Þræðirnir eru helstir 5 og 10 g. eða E og F - Cord. Þær gerðir eru aðallega notaðar til uppkveikju. Sverari þræðir eins og Riocord er fáanlegur í sverleikum 20 g., 40 g. og 80 g. og er sá 80 g. einna vinsælastur í skeringar. Einnig höfum við flutt inn 100 g. þráð sem nefnist Nitrocord en hann er einnig fáanlegur í sömu sverleikum og Riocord.
Primerar eru af gerðinni Dyno Prime í nokkrum stærðum og svo Nobel Prime í einni stærð.
Kynningarmyndir þær sem vísað er í á hnöppunum hér að neðan erum mjög þungar og tímafrekar í hleðslu.
Hér á síðunni fyrir neðan til hægri er vísað í frekari upplýsingar. Þessar upplýsingar eru á sænsku og norsku en á síðunni yfir vörulista eru upplýsingar á ensku, dönsku og norsku.



