Fleiri fá Condor vesti

Við vorum að fá inn sendingu af hvítum sérmerktum stjórnendavestum fyrir Lögregluna á Suðurlandi og Heilbrigðistofnun Suðurlands

Condor HSU vesti Condor HSU vesti
Condor LS vesti Condor LS vesti


Eins og áður hefur komið fram eru vestin fáanleg í ýmsum litum og efnum. Í Polyester/bómul efnum eru vestin fáanleg rauð, hvít,  græn, kóngablá, marínblá og appelsínugul. Í eldþolnu efninu Nomex eru þau fáanleg rauð, hvít, kóngablá, marínblá, gul og appelsínugul. Áprentun í ýmsum litum eða svartir, hvítir, gulir stafir. Eins eru í boði gráir endurskinsstafir. Endurskinsborðarnir eru fáanlegir með Battenburgar mynstri hvít/rauð, grá/rauð, hvít/græn, grá/græn og svo gul. Afgreiðslutími er tiltölulega skammur.

Ef frekari upplýsinga er þörf sendið fyrirspurn á oger@oger.is eða hringið í síma 5684800