Niagara 2 flotdælur til slökkviliða


Nýverið afhentum við enn eina Niagara 2 flotdæluna til slökkviliðs á suðvesturhorninu. Þessi gerð er á mjög góðu verði og einföld í notkun og viðhaldi.

Verulega eftirspurn hefur verið eftir flotdælum.  Við erum nú að taka dælur frá Ogniochron sem okkur líst mjög vel á. Frá þessum sama aðila flytjum við inn slökkvitæki.

Niagara 2 er önnur kynslóð frá þessum framleiðanda. Fleiri gerðir fást en þessi gerð er nettust og aflmest. Verðmunur milli gerða er tiltölulega lítill nema á minnstu gerðinni sem skilar um 750 l/mín. Þá gerð erum við ekki að þessu sinni að taka inn.

Hámarks afsköst eru 1200 l/mín og 410 l/mín við 2bar. Kastlengd um 30 m. Lágmarkssoghæð 30mm. Storz tengi B75.

Stærð er 775 x 410 x 625mm og þyngdin 29 kg.

Vélin er Honda GXV 160 4 kW. við 3600sn/mín. Eldsneytistankur tekur 1,8 l. og endist í 2 klst.

Myndband sem sýnir Niagra 2 gerðina og hér er bæklingur.

Verð til slökkviliða kr. 220.926.- án VSK. Vnr. 374310

Niagra 2 flotdæla

Við eigum eina á lager til afgreiðslu strax.

Ef þið hafið áhuga að panta eða frekari upplýsinga er þörf sendið fyrirspurn á oger@oger.is eða hringið í síma 5684800.