Ný sending af Holik leðurstígvélum fyrir slökkviliðsmenn


Við vorum að fá inn nýja sendingu af Holik leðurstígvélum fyrir slökkviliðsmenn og konur. Lækkað verð.

Við höfum lagt áherslu á tvær gerðir. Önnur er há en hin lág. Nokkur slökkvilið hafa fengið þessar gerðir fyrir sína menn og eftir því sem við best vitum hafa þessar gerðir komið vel út og reynst vel. Verðið er líka einstaklega hagstætt.

Þessar tvær gerðir eru úr nauts leðri, Stáltá og stálsóli, Sóli grófur (Worker) með hálkuvörn, afrafmagnaður, olíu og sýruheldur. Hitaþol 300°C. Laust innlegg (Vildona Drysole). Lukava sem er háa gerðin er með PU vörn yfir stáltána en það er Rusava lægri gerðin ekki með. Lukov og Rusava eru fáanlegar í þremur gerðum Basic, Standard og Plus en milli þessara gerða eru mismunandi gerðir af vatnsvörn. Basic er með 3ja laga Samoa trefjavörn, Standard (sú gerð sem við erum með á lager)  er með Yuma vatnsvörn og Plus með 4ra laga Symtatex vatnsvörn. Skórnir eru reimaðir með rennilás. Fyrst eru skórnir reimaðir svo þeir passi viðkomandi en eftir það er rennilásinn notaður við að fara í eða úr.

 Holik Lukov skór

Upplýsingar
Holik Lukov háir reimaðir og renndir leðurskór Lukov 7108 (330449). Verð er kr. 21.266.- án VSK. til slökkviliða
  Bæklingur
Holik Rusava skór

Upplýsingar
Holik Rusava lágir reimaðir og renndir leðurskór Rusava 7111 (330452). Verð er kr. 19.455.- án VSK. til slökkviliða
  Bæklingur

 

Holik vefsíðan

Holik heildarbæklingur 2015