Nýjar gerðir af Gras brunaslönguhjólum komu í mars


Nýjar gerðir af Gras brunaslönguhjólum eru með ýmsum nýjungum. Einfaldari uppsetning, ný veggfesting, nýjir skápar, ný bremsa ofl. ofl.

Við munum sem fyrst setja meiri og nánari upplýsingar inn á vefsíðuna um Gras brunaslönguhjólin.

Nýja gerð skápanna er þannig að slökkvitækjaskápur og brunaslönguskápur eru í aðskildum einingum.  Unnt er að staðsetja tækjaskápinn við hvaða hlið slönguskápsins sem óskað er og eigi skápurinn að falla inn í vegg er settur yfirfellingarrammi sem krækir saman skápunum tveimur. Eins er hægt að fá yfirfellingarramma á stakan skáp

Stöku skáparnir eru ívið nettari 780x780x180mm. Skápurinn fyrir slökkvitækið er 780x230x180mm. og tvöfaldur skápur er þá 780x1010x180mm.

Verðið sem í boði er er mun hagstæðara en áður og m.a. þess vegna höfum við tekið slönguhjól í 30m. lengdum þar sem skápur og hjól er hvort sem er af sömu stærð í 20m, 25m eða 30m. slönglengdum ásamt því að verðið er lægra en það var á 20m. hjóli stöku og/eða í skáp.

Uppsetningin er einfaldari en veggfestingin er þríhyrningslöguð og fellur hjólafestingin þar í. Bremsa er einföld en þar er annað hvort hert eða losað upp á ró.

Liturinn á skápunum er sá sami þ.e. ljóskremaður RAL9010 og hjólin rauð RAL3000.

Við verðum áfram með eldri gerðir meðan birgðir endast og munum svo sérpanta þær fyrir þá sem þess óska sérstaklega. Eins erum við með aðrar lengdir eins og 40m. brunaslöngur og svo hitaskápa einfalda og tvöfalda.

Gras brunaslönguhjól Gras brunaslönguhjól
Gras brunaslönguhjól í einföldum skáp Gras brunaslönguhjól í einföldum skáp
Gras brunaslönguhjól í einföldum skáp Gras brunaslönguhjól í einföldum skáp
Gras brunaslönguhjól í einföldum skáp Gras brunaslönguhjól í einföldum skáp
Gras brunaslönguhjól í einföldum skáp Gras brunaslönguhjól í tvöföldum skáp
Gras brunaslönguhjól í tvöföldum skáp Gras brunaslönguhjól í tvöföldum skáp
Gras brunaslönguhjól í tvöföldum skáp  Bæklingur