Waterfog rekstútasett á góðu verði


Undanfarið höfum við fengið nokkrar fyrirspurnir um Waterfog rekstútasett. Þess vegna erum við að safna saman í pöntun á nokkrum settum. Þurfum að ná sölu á 5 settum til að geta veitt 10% aukaafslátt af settunum. Tilboðsverð á setti sem samanstendur af þremur rekstútum þar af einum af lengri gerð. hamri, greinistykki, tösku fyrir stúta og greinistykki og eins tösku fyrir slöngur er á kr. 265.586,- án VSK. Takist okkur að ná saman pöntunum í 5 sett þá veitum við 10% aukaafslátt.

Við höfum yfirleitt selt með slíkum settum Mantex 1" slöngur svartar en það eru háþrýstislöngur gúmmí að utan og innan en erum að skoða með að fá Getex slöngur þ.e. hvítar ofnar að utan en gúmmí að innan. Það yrði all miklu ódýrari lausn. Meterinn af slíkum slöngum yrði á kr. 478.- án VSK. Þær slöngur fáum við að minnsta kosti í 25 m. rúllum

Það er því hægt er að fá slöngurnar í mismunandi lengdum og ásetningu tengja.

Ef frekari upplýsinga er þörf sendið fyrirspurn á oger@oger.is eða hringið í síma 5684800    

 Waterfog sett

Yfirlit yfir Waterfog búnaðinn

Hér er aðferðarfræðin sýnd.

Tækniupplýsingar