Opnun útboðs á slökkvibifreið fyrir Flugmálastjórn og Brunavarnir á Héraði

sem staðsett verður á Egilsstaðaflugvelli.

Í dag 18. nóvember 2005 voru opnuð tilboði í flugvalla og húsabrunaslökkvibifreið fyrir Flugmálastjórn og Brunavarnir á Héraði.

Hér á eftir er röðun tilboða. 


    % Mismunur
       
Ólafur Gíslason & Co hf 19.990.900 0,00%  
Ólafur Gíslason & Co hf 21.488.015 7,49% 1.497.115
Ólafur Gíslason & Co hf 21.683.081 8,46% 1.692.181
MT-Bílar ehf 22.607.043 13,09% 2.616.143
Ólafur Gíslason & Co hf 23.128.620 15,70% 3.137.720
Ólafur Gíslason & Co hf 23.293.464 16,52% 3.302.564
MT-Bílar ehf 23.341.781 16,76% 3.350.881
Ólafur Gíslason & Co hf 26.300.391 31,56% 6.309.491
Egenes Brannteknikk AS 28.471.827 42,42% 8.480.927
Egenes Brannteknikk AS 30.449.838 52,32% 10.458.938
S.U.T .- Scandic 34.248.000 71,32% 14.257.100
S.U.T .- Scandic 34.969.282 74,93% 14.978.382
S.U.T .- Scandic 34.973.730 74,95% 14.982.830
Leiguflug Ísleifs Ottósonar  35.369.000 76,93% 15.378.100
Sigurjón Magnússon ehf 38.540.000 92,79% 18.549.100
Sigurjón Magnússon ehf 38.740.000 93,79% 18.749.100

Helstu kröfur voru tvöfalt sex manna áhafnarhús með reykkafarasætum, 6.100 l. af vatni og 610 l. af slökkvifroðu. Dæluafköst 3.000 l/mín við 10 bar og 3m. soghæð með háþrýstiþrepi. Tvær úðabyssur önnur á þaki með afköst 2.500 l/mín og hin á stuðara með 800 til 1.000 l/mín. Lagnir að og frá dælu áttu að vera til hliðanna. Inntak í dælu 125 mm. og 110 mm og úttök 4 stk. 75 mm. Háþrýstikefli tvö með 70 m. 1" slöngum, sjálfstætt froðukerfi 100 kg. dufttæki með 35 m. slöngu. Rafall við vél 6kW, ljósamastur 4-5 m. 3 x 500W, stigi og barkar á þaki o.þ.h. Hröðun 80 km. innan við 40 sek.

Sem sagt ekki hefðbundin flugvallaslökkvibifreið bifreið heldur húsabrunabifreið að auki eða eins og sú bifreið sem við seldum á Egilsstaðaflugvöll síðast.

Alls bárust 16 tilboð frá sex aðilum þ.e okkur, Egenes Brannteknikk AS, MT-Bílum ehf., Leiðuflugi Ísleifs Ottósonar hf, S.U.T. -Scanfire og Sigurjóni Magnússyni ehf. 

Staðreyndin er ljós. Slökkvibifreiðar frá okkur eru á besta verðinu.

Benedikt Einar Gunnarsson