Fomtec æfingarfroðan komin aftur á lager


Við vorum að fá meira af Fomtec æfingarfroðu á lager fyrir stuttu ásamt 3% AFFF léttvatni. Við höfum vonandi áttað okkur á eftirspurninni og stefnum á að eiga æfingarfroðuna á lager.

Fomtec er sænskt fyrirtæki sem við bjóðum slökkvifroður frá. Verksmiðjan er í Svíþjóð og styttir það talsvert flutningsleiðina. Fomtec leggur áherslu á fjölbreytt úrval af slökkvifroðum, búnaði og að framleiðslan sé umhverfisvæn. Við höfum valið að vera með eftirfarandi gerðir en fleiri eiga eftir að bætast við. Yfirlit yfir flestar gerðir og notkunarsvæði.

Fomtec Lógó

 

 

VÖRULISTI (sýnir all flestar gerðir)

Fomtec MB20 Slökkvifroða Vnr. 370305
Fomtec AFFF A Léttvatn Vnr. 370395
Fomtec AFFF M Léttvatn

Fomtec AFFF ICAO Léttvatn Vnr. 370403
Foamtec Æfingafroða Vnr. 370625


Ef þið hafið áhuga á frekari upplýsingum eða viljið skoða kaup sendið á oger@oger.is eða hringið í síma 5684800.