Góðar viðtökur við nýjum gerðum af Ogniochron slökkvitækjum


Við tókum inn sendingu af Ogniochron slökkvitækjum og þar á meðal er ný gerð af 2ja kg. kolsýrutæki sem er sérstaklega ætlað á elda í tölvum og stjórnbúnaði. Einnig 2ja kg. léttvatnstæki sem er mjög öflugt miðað við stærð og frostþolið.

2ja kg. kolsýrutækið er hentugt slökkvitæki á viðkvæman búnað en slík tæki hafa ekki verið til síðan Halonið var og hét. Þetta tæki er uppselt í bili en kemur aftur.

2 kg Ogniochron kolsýrutæki

 

2 kg. Ogniochron GSE-2x Kolsýruslökkvitæki m/veggfestingu. . Þyngd 6,5 kg. Notkunartími 6 sek. Á elda undir 1000V Hæð 543mm og þvermál 105mm. Sérstaklega á elda í tölvum, stjórnbúnaði og spennistöðvum. Dregur úr áhrifum kulda á búnaðinn.

Bæklingur

 

 

 

 

Ogniochro 2 l. léttvatnstæki

 

 2 lítra Ogniochro ABF Léttvatnstæki. Afköst 8A 55B 40F m/mæli og veggfestingu. Vinnuhitastig -30°C til 60°C. Þyngd 4.5 kg. Stærð 433 x 110 mm.

Bæklingur

 

 

 

 

 


Ef frekari upplýsinga er þörf eða þið viljið panta sendið þá póst á oger@oger.is eða hringið í síma 5684800.