Nýlega var settur upp skápur með Bridgehill bílaslökkviteppi í stórum bílakjallara á höfuðborgarsvæðinu


Nýlega var settur upp skápur með Bridgehill bílaslökkviteppi í stórum bílakjallara á höfuðborgarsvæðinu. Vegna aukinnar eftirspurnar erum við með teppin og skápana á lager.

Eldur í bíl Bílaslökkviteppi

Bílaslökkviteppi 374193: Ætlað fyrir alla. Í bílastæðahús, báta, ferjur, skip, bílasölur, bílageymslur, bensínstöðvar og aðra staði. Stærð 6 x 8 m. (48 m2). Þyngd 28 kg. Hitaþolið kvartsefni 430 g/sm. Í geymslupoka og innri plastpoka. Pokinn með handföngum og hægt að nota sem bakpoka. Yfirleitt tekið með skáp og lýsing hér að neðan.

Skápur fyrir bílaeldteppi

Skápur á vegg fyrir stærri teppin 374194: Stálskápur í stærðinni 90 x 35 x 30 sm. fyrir allar gerðir teppa. Læstur með lykli sem er í hólfi með gleri sem brjóta þarf ef opna þarf skápinn. Þyngd 15 kg.

Snjallpoki: Þessi poki er vel merktur, auðvelt að meðhöndla af einum eða tveimur manneskjum. Eins er hægt að nota sem bakpoka Það er líka þurrpoki (vatnsþéttur) til að loka frá lyktina frá notuðum teppum.

Eldur í ökutækjum: Með því að einangra með Bridgehill slökkviteppinu, er hægt að forðast hættu á miklum reyk og sprengingum. Einnig geta teppin komið í veg fyrir hættulega eldsvoða í göngum. Slökkviteppi ætti að vera tiltækt á bílastæðum, bílastæðahúsum, bílferjum, í öllum göngum, hleðslustöðvum fyrir rafknúin ökutæki og annars staðar þar sem er mikið um bíla. Í bæði bílum og lyfturum brýst oftast út eldur undir vélhlíf eða í burðarvirki. Froða, duft eða vatn slekkur eld auðveldlega að utan, en nær ekki  innan í vél eða rafhlöður/rafgeyma. Eldurinn kviknar oft aftur og aftur sérstaklega í raf-ökutækjum.
Teppið er örugg og góð lausn. Það er líka „grænt“ val til að takast á við þessa elda. Með slökkvivatni fara þúsundir lítra af menguðu vatni í niðurföll og jörð og mikið af slæmum reyk fer í andrúmsloftið. Teppi hylur allt strax. Teppið er að megninu til úr steini = græn vara. Í göngum, bílastæðahúsum og ferjum er mikilvægt að hindra allan reyk til að takmarka tjón.

Þetta er ein lausn á markaðnum til að takast á við rafbílaelda. Þegar það er fært yfir bílinn slekkur það eldinn í bílnum sjálfum. Ef litíum rafhlöðurnar eru með hitaleka, getur þú heyrt þetta frá teppinu sem sterkt hvæs-hljóð á 3-15 sekúndna fresti. Þetta getur haldið áfram í allt að 24 klukkustundir. Teppið er bara skilið eftir. Ef ekki heyrist í neinum leka má taka teppið af eftir 20 mínútur.Hér má sjá myndskeið af notkun til að slökkva í bíl: https://www.youtube.com/watch?v=puIFCYMo-gM

Fyrir frekari upplýsingar hafið samband í síma 568 4800 eða sendið tölvupóst á oger@oger.is.

 

Logo