Scott X190 hitamyndavél afhent


Fyrir nokkru afhentum við Scott X190 hitamyndavél til góðs viðskiptavinar. Þetta er ný gerð og er önnur vél af þessari gerð er væntanleg í nýrri slökkvibifreið.

Sú gerð sem við höfum selt er Scott Eagle gerð og eru nokkrar hér í notkun. Þessi gerð X190 tekur við af henni. Mjög einfalt að vinna með. Einnar takka vél, skýr 3,5" skjár, skýr mynd við 1093°C, létt rúmt kg. á þyngd, sjálfvirkur fókus ofl. ofl. Kemur allt fram í bæklingnum hér að neðan. Sú gerð sem við höfum tekið inn er 8005076.

Scott hitamyndavél og fylgihlutir

Þessar vélar eru fáanlegar í mismunandi útfærslum og ýmiss aukabúnaður. Eftir því sem þær eru betur útbúnar hækkar verðið. Möguleikar koma fram í bæklingum hér neðar á síðunni. Ef frekari upplýsinga er þörf sendið fyrirspurn á oger@oger.is eða hringið í síma 5684800. 

Bæklingur