Stór Holmatro sending

 

Holmatro sending

Við vorum að taka inn stóra sendingu af Holmatro björgunartækjum. Stóru EVO3 rafhlöðudrifnu setti, Combi klippum og glennum rafhlöðudrifnum og svo háþrýsti og lágþrýstipúða.

Holmatro EVO3 rafhlöðudrifnu tækjasettin er algjör bylting. Mikil framþróun frá fyrstu rafhlöðudrifnu EVO tækjunum. Léttari og hraðvirkari.  Kolalausir rafmótorar, lágværari og öruggari. Sömu rafhlöður 5Ah.

Núna eru allar gerðir í 5000 línunni fáanlegar sem EVO3 tæki. Einstök hönnun eins og búast má við af Holmatro. Hér er nýjasti bæklingurinn yfir EVO tækin.

Núna er hægt að fá breytisett úr EVO yfir í EVO3. einföld skipti og breyting. Einnig er hægt að fá breytisett úr vökvadrifnum tækjum yfir í EVO3.  Hér má sjá muninn milli hefðbundins vökvadrifins Holmatro tækis og rafhlöðudrifinnar gerðar af sömu gerð.

Áfram er Holmatro í fararbroddi í þróun björgunartækja. Myndband sem sýnir EVO 3 gerðir í notkun.

Holmatro sending

Ef þið hafið áhuga að panta eða frekari upplýsinga er þörf sendið fyrirspurn á oger@oger.is eða hringið í síma 5684800.