Stór sending af slökkvitækjum var að koma á lager


Stór sending af Mobiak slökkvitækjum var að koma á lager. Í þessari sendingu voru léttvatstæki, kolsýrutæki, dufttæki og sérstök slökkvitæki á litíum rafhlöðuelda. Eftirspurn hefur aukist eftir þessum tækjum en við höfum verið með þau í 2ja kg. og 6 kg. stærðum og ákváðum að taka inn minni tæki. Mikið af tækjum eins og rafhjól, rafskutlur, rafhlaupahjól eru búin litíum rafhlöðum og er nau8synlegt fyrir þá sem viðhalda eða þjónusta slík tæki að vera með svona slökkvitæki. Vnr. á 500g tækinu er 300401

Nú fáum við dufttækin og léttvatnstækin með veggfestinguna á kútnum ekki á handfangi. Það var gert eftir óskum viðskiptavina.

Mobiak slökkvitæki

Ef þið hafið áhuga að panta eða frekari upplýsinga er þörf sendið fyrirspurn á oger@oger.is eða hringið í síma 5684800.