Umhverfisvæn margnota slökkviteppi fyrir bílaelda

TÍMABUNDIÐ VORTILBOÐ Á SLÖKKVITEPPUM! Hafið samband við okkur.

Þegar hugað er að kaupum á stórum slökkviteppum fyrir bíla, lyftara og önnur tæki þarf að hafa í huga hvort kaupa eigi einnota teppi eða margnota. Teppin frá Bridgehill sem við bjóðum eru margnota. Hægt er að nota þau allt að 25 sinnum. Eðlilega eru þau dýrari en einnota teppi, en eru fljót að borga sig. Svo er það umhverfisþátturinn, sóun og nýting. Auðvitað er vænna að nota hlut oftar en einu sinni og erfitt getur verið að endurnýta glerfíber sem oftast er notað í einnota eldteppi. Margnota teppi styðja betur æfingar. Dýrt að nota einnota teppi til æfinga. Fyrir þá sem vilja einnota teppi munum við bjóða þau frá Bridgehill seinna á þessu ári.

Slökkviteppi frá okkur framleitt af Bridgehill var notað í æfingu á ráðstefnu Brunavarna Árnessýslu (sjá hér) 9. apríl s.l. með frábærum árangri.

Við höfum nú selt fyrstu sendinguna af Bridgehill Professional slökkviteppum en þau eru notuð á elda í rafmagnsbílum. Teppið kemur líka að notum á aðra elda eins og elda í bensín og díselbílum. Þetta eru svo kölluð yfirteppi sem lögð eru yfir bílinn en svo eru til svo kölluð undirteppi sem eru ætluð undir bílinn en þau eru í laginu eins og laug sem sett er undir bílinn og fyllt af vatni til að drekka rafgeymunum þe. ef eldurinn reynis ill viðráðanlegur. 

Bridgehill slökkviteppi
  • Umhverfisvænt

  • Borgar sig eftir örfá skipti

  • Styður slökkviæfingar

  • Lágmarkar reykdreifingu

  • Varnar hitadreifingu í nærliggjandi eldsmat

 

Eld í litíum rafgeymum er erfitt að slökkva vegna efnahvarfa og gríðalegs varmamyndunar. Þegar rafgeymasellurnar hitna verður keðjuverkun og íkveikja í hverri sellunni á fætur annarri og hitinn eykst. Hitinn getur í kjarna náð allt að 3000°C og rafgeymana þarf að ná að kæla niður fyrir 100°C til þess að slökkva eldinn.

Við bruna í rafmagnsbílum sleppa út miklar eiturgufur og efni út í loftið og jarðveg svo þar er mikið atriði að ná að slökkva eldinn á sem skemmstum tíma sem mögulegt er.

Reynslan af Professional teppunum er mjög góð,. Slökkva elda á skömmum tíma. Þau má nota aftur og aftur og er einfalt að þrífa.

Við höfum eingöngu tekið inn yfirteppin, ekki undirteppin en Bridgehill býður upp á ýmsar gerðir af teppum. Gerðir sem eru ætluð í bílageymslur og eins teppi sem endurkasta hita en þau eru til að verja umhverfið frá eldstað.

Við reynum að eiga þessi teppi á lager og afgreiðslutíminn er skammur. Núna eru örfá teppi á vortilboði, fyrstur kaupir fyrstur fær.

Professional slökkviteppi Professional slökkviteppi
 Professional slökkviteppi  Professional slökkviteppi

Hér eru meiri upplýsingar um teppin frá Bridgehill: https://www.oger.is/is/eldvarnir/eldvarnateppi/staerri-slokkviyfirbreidslurteppi 

TÍMABUNDIÐ VORTILBOÐ Á SLÖKKVITEPPUM! Hafið samband við okkur.

Ef þið hafið áhuga á frekari upplýsingum eða viljið skoða kaup sendið á oger@oger.is eða hringið í síma 5684800.