Ný sending og nýjar gerðir af Ogniochron slökkvitækjum


Við vorum að fá inn sendingu af Ogniochron slökkvitækjum og þar á meðal er ný gerð af 2ja kg. kolsýrutæki sem er sérstaklega ætlað á elda í tölvum og stjórnbúnaði. Í sendingunni voru líka 2ja kg. léttvatnstæki og 5 kg. kolsýrutæki.

Af 2ja kg. kolsýrutækinu tókum við örfá eintök aðeins til að geta boðið þennan möguleika en eins og vitað er hefur ekki komið fram hentugt slökkvitæki á viðkvæman búnað síðan Halonið var og hét.

2 kg Ogniochron kolsýrutæki 2 kg. Ogniochron GSE-2x Kolsýruslökkvitæki m/veggfestingu. . Þyngd 6,5 kg. Notkunartími 6 sek. Á elda undir 1000V Hæð 543mm og þvermál 105mm. Sérstaklega á elda í tölvum, stjórnbúnaði og spennistöðvum. Dregur úr áhrifum kulda á búnaðinn.

Bæklingur
GS-5x B/MP Kolsýrutæki
5 kg. Ogniochron GS-5x B/MP Kolsýruslökkvitæki m/veggfestingu.
Afköst 89B. Þyngd 14 kg. Kastlengd 5 m. Notkunartími 9 sek.

Bæklingur

2ja l. léttvatnstækin hafa fengið góðar viðtökur. Það sem er sérstakt við þau tæki er frostþolið en það er -30°C.

Ogniochro 2 l. léttvatnstæki 2 lítra Ogniochro ABF Léttvatnstæki. Afköst 8A 55B 40F m/mæli og veggfestingu. Vinnuhitastig -30°C til 60°C. Þyngd 4.5 kg. Stærð 433 x 110 mm.

Bæklingur


Ef frekari upplýsinga er þörf eða þið viljið panta sendið þá póst á oger@oger.is eða hringið í síma 5684800.