Foscar froðustútar á há og lágþrýsting


Við höfum tekið inn Foscar háþrýsti og lágþrýsti stúta en SHS hefur fyrir all nokkru tekið þessa í notkun ásamt Waterfog stútum og með góðum árangri.

HT2LX Háþrýstifroðustúturinn skilar við 40 bar ca. 100 l/mín og er froðublöndunin 0,5%

HT2MX Lágþrýstifroðustúturinn skilar við 10 bar ca. 70 l/mín og er froðublöndunin 0,8%

Mælt er með að nota Bio FOR C klassa A+B froðu

Sjá bækling.

Foscar froðustútasett


Eins og áður sagði hefur SHS tekið þessa stúta í notkun og hefur árangur verið góður. Hér er búnaður til að auka möguleika á slökkviaðferðum og til að einfalda aðgerðir. Nýta háþrýstislönguna meira og betur sem er á kefli og auðvelt að draga út og inn, vera með búnað sem hjálpar til við slökkvistarf við aðstæður sem oft eru erfiðar og óskemmtilegar svo sem í gámum, rusli, bílum og þess háttar.

Með þessum búnaði og eins Waterfog rek og svanahálsstútum er einnig verið að tryggja betur vinnuumhverfi slökkviliðsmanna t.d. með lengri stútnum svo ekki þurfi að standa alveg ofan í brunanum, beyga sig undir bíla o.s.f. Froðustúturinn er þannig að fljótlegt sé að draga út og fá froðu á stút, án þess að taka froðu í gegnum dæluna með öllu því sem því fylgir s.s. skolun. Fljótvirkt og notar litla froðu. Settið er með vnr. 365710 og fylgir þá brúsi af froðu eins og sést á myndinni.

Foscar háþrýstifroðustútur Foscar lágþrýstifroðustútur


Ef þið hafið áhuga á frekari upplýsingum eða viljið skoða kaup sendið á oger@oger.is eða hringið í síma 5684800.