Brunavarnir Árnessýslu




Sjöunda bifreiðin var byggð fyrir Brunavarnir Árnessýslu. Hún er af samskonar gerð og Slökkvilið Ísafjarðar valdi nema þessi hefur enn meiri burðargetu þar sem hún er með 3.800 l. vatnstank og 200 l. froðutank. Slökkvibifreiðin sem er af Mercedes Benz 1634 gerð er með 340 hestafla vél. Bifreiðin er fjórhjóladrifin með sídrifi háu og lágu og læsingum.

Hér er bifreiðin enn úti í Noregi
Rosenbauer slökkvidæla (NH30) afkastar 3000 l/mín við 10 bar og háþrýstihlið skilar 400 l./mín við 40 bar. Sjálfvirkt sog.

Dælan er búin tveimur sjálfstæðum froðukerfum þannig að hægt er að hafa froðu á háþrýsti hliðinni og hreint vatn á lágþrýstihliðinni eða froðu í báðum samtímis. Bifreiðin er búin einu háþrýstikefli rafdrifnu með 90 m. af 3/4" háþrýstislöngu og Rosenbauer Ne-Pi-Ro háþrýstibyssu.

 
Á sérstöku hjóli er komið fyrir 2 x 50 m. Mantex háþrýstislöngum til að framlengja slöngu á háþrýstikefli. Ýmsar innréttingar fyrir búnað eins og brunaslöngur, útdraganlegur pallur fyrir reykköfunartæki, AGA Spiromatic reykköfunartæki, rafstöð og fl.Hér er æfing á Selfossi
Raufoss 10 m. þrískiptur brunastigi og sogbarkar á þaki. Tengingar fyrir talstöð og síma. Bifreiðin tekur þrjá menn.

Orkuhlutfall þessarar bifreiðar er rúm 25 hestöfl á hvert tonn og lestun 88% af heildarþyngd. Brunavarnir Árnesinga hafa sett í bifreiðina nýja rafstöð, Holmatro björgunartæki og klippur, Ramfan yfirþrýstingsblásara ofl.

 

Í ágúst 2003 fengu Brunavarnir Árnessýslu Körfubíl

Hér er bifreiðin fyrir utan slökkvistöðina í Stavanger


Hér er bifreiðin við aðalslökkvistöðina í Stavanger. Búið að gera klárt fyrir notkun. Sú sem er lengst til hægri á myndinni er Anne Hjórt en hún er aðstoðarslökkviliðsstjóri í Stavanger.

Mjög vel með farin bifreiðBifreiðin er af árgerð 1979 og undirvagn af gerðinni MB 2632/45 og 320 hestöfl (V 10) og átta gíra. Körfubúnaður er byggður í Bretlandi af Simone Snorkel. Bifreiðin var ekinn um 42.500 km og vinnustundir voru 2.080 klst. Bifreiðin lítur mjög vel út og er í góðu ásigkomulagi enda verið vel hugsað um hana. Mjög auðvelt er að vinna með körfubúnað og öryggi einfalt en mikið.

Karfan kemst í 28 m. hæð og er stigi á bómu svo hægt er að taka fólk niður stigann við björgun. Varamótor af gerðinni Kohler gefur neyðarafl. Bifreiðin var prófuð af Kristjáni slökkvistjóraÁ hvorri hlið eru tvö 2 1/2" inntök fyrir vatnsbyssu.


Skápar eru tveir á hvorri hlið fyrir margskonar búnað. Sæti í ökummannshúsi eru fyrir tvo utan bílstjóra.

Heidarþyngd er 18.850 kg. með ökummanni. Leyfð þyngd er 23.500 kg. Lengdin er 11,85 m. og breidd 2,5 m. Hjólhaf 4,5 m.


Slökkviliðið í Stavanger á  aðra bifreið af samskonar gerð sem lyftir lægra og er með styttra hjólhaf.

Eins eiga þeir nýja körfubifreið af Vema gerð sem er tölvustýrð og hefur það verið reynsla þeirra að nota frekar Simone Snorkel bifreiðarnar þar sem tölvutæknin vill flækjast fyrir mönnum en mikla þjálfun og kunnáttu þarf eðlilega á slíkar bifreiðar.Og niður þurfa menn að komast








Simone Snorkel hefur reynst vel í Noregi. Margar bifreiðar eru þar og má nefna að slökkvilið Oslóborgar hefur sett nýjan undirvagn undir elsta Simone Snorkel körfubúnað sinn til þess að geta nýtt hann áfram.
Karfan


Í körfu er vatnsbyssa af Akron Brass gerð sem skilar um 2.275 l/mín.