Slökkvilið Borgarbyggðar


Slökkvibifreiðin er byggð og útbúin af slökkvibifreiðaframleiðandum Wawrzaszek í Bielsko-Biala í Póllandi. Undirvagn er af gerð Renault Kerax 450.19 4x4. 4.100 mm. milli hjóla. Heildarburðargeta bifreiðar er 19 tonn en í þessari útfærslu er heildarþyngd bifreiðar 17 tonn.
Opnir skápar

Hestöfl pr. tonn eru rúm 26,5 og er það mjög kraftmikil slökkvibifreið. Hestöfl vélar eru 450 og hámarkshraði er 125 km/klst. Bifreiðin er með sídrifi, háu og lágu drifi, læsingum og fl. Hjólbarðar (Michelin) eru negldir heilsárshjólbarðar.

Bifreiðin er byggð eftir evrópskum stöðlum og er þessi bifreið t.d. byggð eftir EN 1846-1 staðli.



Allur búnaður sem er í bifreiðinni er evrópskur og af þeim gerðum sem vel er þekktur hérlendis eins og t.d. Ruberg dælur (sænskar) sem eru m.a. í slökkvibifreiðum á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri, Stöðvarfirði, Hrísey og Selfossi.
Ástig við miðjuskáp

Hér eru um 20 til 25  Ruberg dælur af svipaðri gerð. Dælugeta þessara dælna er sambærileg við þá dælu sem er í stærri slökkvibifreiðinni á Reykjavíkurflugvelli þ.e. 4.000 l/mín. og svo nýjum bifreiðum sem við höfum selt til Laugarvatns, Reykholts, Sauðárkróks, Ísafjarðar, Eskifjarðar, Fáskrúðsfjarðar, Þorlákshafnar, Egilsstaða og Árnes.




Hér fer á eftir lýsing á helsta búnaði í bifreiðinni.

Í ökumannshúsi sem er lengri gerð þ.e. 4 dyra ökumannshús eru sjö sæti, ljós, sjálfstætt hitakerfi (Webasto miðstöð), handstýrður,ljóskastari, hitaðir speglar og aukaspeglar, ljós í þrepum sem kvikna við opnun hurða, endurskin á hurðum.
Niðurfellanleg ástig
Sólskyggni á þaki merkt slökkvibíll. Öryggisbelti í öllum sætum og áklæði á sætum (hreinsanlegt). Í afturhluta ökumannshúss eru fjórir stólar fyrir reykkafara og í bekk er geymsla. Reykköfunarstólarnir eru af nýrri gerð með kónískum kútafestingum. Fjaðrandi ökumannsæti, tvö sæti fyrir farþega fram í, sírena með hljóðnema,  blá stróp ljós í grilli að framan, á afturvegg, á hliðarvegg, frambretti og aftan á þaki. Strópljósarenna er á þaki og lofthorn. Ástig við afturhurðir fellur niður við opnun.


Varnargrindur á öllum ljósum. Forrituð Motorola talstöð. Margs konar viðvörunarljós eins og ef hurðir eða ástig eru opin í yfirbyggingu, ljósamastur eða úðabyssa uppi, hleðslutenging í sambandi, ljós í skápum, fyrir innsetningu dælu og vatns og froðu tankamælar.

Hleðslutæki fyrir talstöðvar. 24V rafkerfi, rafall 2.200W og rafgeymar 2 x 180Ah. Höfuðrofi.

Efni yfirbyggingar úr ryðfríum efnum, trefjaplasti og byggt með samlokuaðferð og álprófílar sem undirstöður fyrir innréttingar.
Dælan 4000 l/mín

Yfirbyggingin er eingöngu úr trefjaplasti gegnheilu. Ekkert stál eða krossviður. Þak er vinnupallur með upphleyptum álplötum, burður 450 kg.

Þrír skápar á hvorri hlið og einn að aftan.  Rykþéttar rennihurðir úr áli með læsingum.

Ljós kviknar í skápum við opnun og eins er rofi í ökumannshúsi.  Vinnuljós allan hringinn sem gefa 5 til 15 Lux í 1 m. fjarlægð. 


Hillur og skúffur með læsingar í opinni stöðu.  Þær innréttingar sem staðið geta 25 sm. út frá bifreiðinni eru með endurskin. 

Öll handföng, hurðir og lokur er gert fyrir hanskaklæddar hendur.  Vatnshalli í skápum. 

Yfirborð þaks og gólf í skápum klætt með upphleyptum seltuvörðum álplötum.
Spil yfir 6 tonn og spilpallur


Við alla skápa eru fellanleg ástig sem um leið eru hurðir fyrir neðri skápa. Fellanlegt ástig er líka við skápa yfir afturhjólum. Vatnstankur tekur 4.000 l. úr trefjaplastefni með tilheyrandi búnaði.  Froðutankur tekur 200 l. og er úr trefjaplastefnum með tilheyrandi búnaði.  Möguleiki á að fylla froðutank frá þaki og svo frá jörðu.  Brunadælan er staðsett að aftan, upphituð frá kælikerfi bifreiðar.


Dæla er seltuvarin úr bronzi og stáli.  Tveggja þrepa 4.000 l/mín við 10 bar og 400 l/mín við 40 bar.  Gerð Ruberg R40/2.5. Hámark vatns á háþrýstikefli 150 l/mín. miðað við slöngustærð.

Eitt háþrýstikefli með 90 m. slöngu 19mm. Castek úðastútur stillanlegur og með froðutrekt.  Froða í gegnum úðastút.  Slöngukeflið er bæði raf- og handdrifið.
Kerrutengið fyrir "kerrurnar"

Úttök frá dælu eru fjögur 65mm til hliðanna inni í skáp á hliðum.  Eins er lögn að háþrýstislöngukefli.  Dælan getur fyllt á tank og eru afköst 1.700 l/mín. um 2" lögn.

Á þaki er úðabyssa af gerðinni Phorjne sem skilar 3.200 l/mín með loftstýrðum loka og froðutrekt. Úðabyssan rennur sjálfvirkt (vatnsafl) upp og niður úr þaki. Eins getur sá sem stýrir byssu stýrt snúningi dælu.



Loftstýring á lokum. Sog er um tvö 100mm Ø inntök og eitt 75mm Ø með spjaldlokum og Storz tengjum.  Lögn frá tanki að dælu 125mm Ø. Mælaborð dælunnar er með sogmæli, lágþrýstingsmæli, háþrýstingsmæli, vatnsmæli, froðumæli, snúningshraðamæli dælu, neyðarstöðvunarrofa, klst. mæli og viðvörunarljós fyrir olíuþrýsting og kælivatn.

Eins er viðvörunarljós fyrir loftbólumyndun og ýmis önnur viðvörunarljós í rofum fyrir opnun og lokun svo auðvelda megi þeim sem vinna við dæluna að sjá hvað sé opið eða lokað.
Froðublandari á háþrýsting
Stór hluti stjórntækja dælunnar eru loftstýrðar. Dælan er einstaklega vel útbúin.  Að vatnstanki er eitt inntak Storz B ásamt kúluloka og þrýstingsmæli.

Dælan er búin rafstýrðum gangráð sem tryggir stöðugan þrýsting í þrýstihluta dælunnar. Hann má aftengja og handstýra. Eins er dælan með varnarbúnað gagnvart óhreinindum sem valdið geta skemmdum. 




Froðubúnaður er loftstýrður og er frá 1% , 3% og 6% á allt afkastasvið dælunnar. Allt froðukerfið er gert úr efnum sem þola froðu og er úr sýruþolnumefnum.  Einnig er sér froðublandari fyrir háþrýsting 1% til 3%. Sýruþolið stál er notað.  Hægt er að dreina allt dælukerfið með tveimur lokum.
Glæsilegur
Á soghlið dælunnar er síubúnaður sem verja á hana óhreinindum bæði frá opnu og vatnstanki.  Tryggir örugga notkun dælunnar.  Samskonar miðstöð er í dælurými og ökumannshúsi þ.e. Webasto Air með lögnum í alla skápa. Þessar miðstöðvar verja vatns og froðukerfi fyrir frosti allt að 25°C. Veggir milli skápa eru opnir.

Frá öftustu miðstöð er barkaúttak fyrir 15 m. barka sem nota á við að leggja hita að t.d. slysavettvang þar sem hugsanlega þarf að halda hita á slösuðum.

3 stk. 4" barkar í 3ja m. lengd eru í sérstökum festingum á þaki. Sigti með loka 100mm og vírkarfa.

Ljósamastur er af Fireco gerð 2 x 1000W loftdrifið snúanlegt og ljóskastarar veltanlegir. Rafstöð er af Eismann gerð 5,3 Kva. og er hún á útdraganlegum palli í einum neðri hliðarskápa.

Stigi af Makros gerð þrískiptur 8,1 m. langur á þaki yfirbyggingar. Stiginn uppfyllir EN 1147 staðal og vegur aðeins 30 kg.

Ýmis annar búnaður eins og nato tengi til neyðarstarts, lofttengi af kerfi fyrir loftpúða, hátalari með míkrafóni í dælurými, 6 tonna rafmagnsspil að framan og kúlutengi að aftan fyrir "kerrurnar"
Úttök og inntak á vatnstank m/mæli
Innréttingar eru ýmsar í bifreiðinni og má nefna fjórar slönguhillur, útdraganlegan pall fyrir lausa dælu og rafstöð. Snúanlegur veggur fyrir reykköfunartæki. Fastar hillur. Útdraganlegar skúffur tvær fyrir úðastúta og lykla ofl.

Allar leiðbeiningar og merkingar á bifreiðinni eru á íslensku og kemur hann þannig frá yfirbyggjanda. Allar tölvugerðar og smekklegar.



Í bifreiðinni verður ný Rosenbauer Otter slökkvidæla með 3" 3ja m. sogbörkum ásamt sigti m/loka og vírsigti.

EV-420 Ramfan yfirþrýstingsblásari með stiglausri stýringu sem flytur 18.000 m3/klst. Twinsaw CDC2530-310 tvíblaða björgunarsög sem sagar 100mm..

Vatnslaug af gerðinni Fol-da-tank 9.500 l. með aftöppun um Storz 4" loka og undirbreiðu og í hlífðarpoka. Laugin verður merkt Slökkviliði Borgarbyggðar.

400 m. af Gurdsman bláar 3" slöngur m/ á víruðum Storz tengjum og í 20 m. slöngurúllum. Protek 366 475 l/mín úðastútar með stillanlegu magni og eins froðurör á þá stúta.

A-BB Safnstykki og B75 3" vatnsveggur, A/B og B/C minnkanir ásamt tengjum með BSP og NST gengjum fyrir brunahana. ABC og BC lyklar á Storz tengin.

Nite RC500K hlaðanleg leitarljós og Peli 2610 höfuðljós. Towalex MB15 3% fer á froðutankinn en þetta er algengasta froðan.

Eins og sjá má á ofansögðu þá er og verður þetta vel útbúin slökkvibifreið.

Yfirbyggjandi er stærsti framleiðandi slökkvibifreiða í þessum hluta Evrópu. Framleiða allar gerðir slökkvibifreiða og eins gáma fyrir slökkvilið en ekki körfu og stigabifreiðar. Fyrirtækið var stofnað 1988 og eru starfsmenn þess 400 talsins. Á ári hverju eru seldar um 250 til 500 bifreiðar og markaðurinn í Evrópu og svo Asíu. M.a.eru þeir undirverktakar við smíði og yfirbyggingar fyrir framleiðendur í Þýskalandi og á Norðurlöndum.