Brunavarnir Árnessýslu Árnesi


Hér er bifreiðn enn áverksmiðju WISS
Slökkvibifreiðin er byggð og útbúin af slökkvibifreiðaframleiðandum Wawrzaszek í Bielsko-Biala í Póllandi. Undirvagn er af gerð Renault Kerax 450.19 4x4. Heildarburðargeta bifreiðar er 19 tonn en í þessari útfærslu er heildarþyngd bifreiðar 18 tonn.

Hestöfl pr. tonn eru 25 og telst það mjög kraftmikil slökkvibifreið. Hestöfl vélar eru 450 og hámarkshraði er 125 km/klst. Bifreiðin er með sídrifi, háu og lágu drifi, læsingum og fl. Hjólbarðar (Michelin) eru heilsárshjólbarðar.

 Bifreiðin er byggð eftir evrópskum stöðlum og er þessi bifreið t.d. byggð eftir EN 1846-1 staðli.

TLF6000/200 í verksmiðju
Allur búnaður sem er í bifreiðinni er evrópskur og af þeim gerðum sem vel er þekktur hérlendis eins og t.d. Ruberg dælur (sænskar) sem eru m.a. í slökkvibifreiðum á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri, Stöðvarfirði, Hrísey og síðan en ekki síst á Selfossi.

Líklega eru hér um 20 til 25  Ruberg dælur af svipaðri gerð. Dælugeta þessara dælna er sambærileg við þá dælu sem er í stærri slökkvibifreiðinni á Reykjavíkurflugvelli þ.e. 4.000 l/mín. og svo nýjum bifreiðum sem við höfum selt til Sauðárkróks, Ísafjarðar, Fjarðabyggðar, Þorlákshafnar og Egilsstaða.

Dæluskápur Yfirbyggjandi er stærsti framleiðandi slökkvibifreiða í þessum hluta Evrópu. Framleiða allar gerðir slökkvibifreiða og eins gáma fyrir slökkvilið en ekki körfu og stigabifreiðar. Fyrirtækið var stofnað 1988 og eru starfsmenn þess 400 talsins. Á ári hverju eru seldar um 250 til 500 bifreiðar og markaðurinn í Evrópu og svo Asíu. M.a.eru þeir undirverktakar við smíði og yfirbyggingar fyrir framleiðendur í Þýskalandi og á Norðurlöndum.

Hér fer á eftir lýsing á helsta búnaði í bifreiðinni.

Í ökumannshúsi sem er af Global gerð þ.e. 400 mm. lengra en venjulegt ökumannshús eru þrjú sæti, ljós, sjálfstætt hitakerfi (Webasto miðstöð), handstýrður,ljóskastari, hitaðir speglar og aukaspeglar, ljós í þrepum sem kvikna við opnun hurða, endurskin á hurðum.
Fremri hliðarskápur hægra megin


Sólskyggni á þaki merkt slökkvibíll. Öryggisbelti í sætum og áklæði á sætum (hreinsanlegt).  Fjaðrandi ökumannsæti, sírena með hljóðnema, blá stróp ljós í grilli að framan, á afturvegg, á hliðarvegg, frambretti og aftan á þaki. Strópljósarenna er á þaki og lofthorn. 

Varnargrindur á öllum ljósum. Hljóðmerki tengt bakkljósi. Forrituð Motorola talstöð. Margs konar viðvörunarljós eins og ef hurðir eða ástig eru opin í yfirbyggingu, ljósamastur eða úðabyssa uppi, hleðslutenging í sambandi, ljós í skápum, fyrir innsetningu dælu og vatns og froðu tankamælar.

Hleðslutæki fyrir talstöðvar. 24V rafkerfi, rafall 2.200W og rafgeymar 2 x 180Ah. Höfuðrofi.





Efni yfirbyggingar úr ryðfríum efnum, trefjaplasti og byggt með samlokuaðferð og álprófílar sem undirstöður fyrir innréttingar.

Yfirbyggingin er eingöngu úr trefjaplasti gegnheilu. Ekkert stál eða krossviður. Þak er vinnupallur með upphleyptum álplötum, burður 450 kg.
Hægri aftari hliðarskápur

Tveir skápar á hvorri hlið og einn að aftan.  Gegnum gangandi fremri skápur á hlið.  Rykþéttar rennihurðir úr áli með læsingum.

Ljós kviknar í skápum við opnun og eins er rofi í ökumannshúsi.  Vinnuljós allan hringinn sem gefa 5 til 15 Lux í 1 m. fjarlægð.  Hillur og skúffur með læsingar í opinni stöðu.  Þær innréttingar sem staðið geta 25 sm. út frá bifreiðinni eru með endurskin. 

Öll handföng, hurðir og lokur er gert fyrir hanskaklæddar hendur.  Vatnshalli í skápum. 

Yfirborð þaks og gólf í skápum klætt með upphleyptum seltuvörðum álplötum.






Við alla skápa eru fellanleg ástig sem um leið eru hurðir fyrir neðri skápa. Vatnstankur tekur 6.000 l. úr trefjaplastefni með tilheyrandi búnaði.  Froðutankur tekur 200 l. og er úr trefjaplastefnum með tilheyrandi búnaði.  Möguleiki á að fylla froðutank frá þaki og svo frá jörðu.  Brunadælan er staðsett að aftan, upphituð frá kælikerfi bifreiðar.

Dæla er seltuvarin úr bronzi og stáli.  Tveggja þrepa 4.000 l/mín við 10 bar og 400 l/mín við 40 bar.  Gerð Ruberg R40/2.5. Hámark vatns á hvoru háþrýstikefli 150 l/mín. miðað við slöngustærð.Vinstri aftari hliðarskápur


Froðukerfið er stillanlegt við 1% eða 3% og vatnsmagn. Allar stýringar froðukerfis loftstýrðar. Háþrýstislöngukeflin eru tvö með 90 m. slöngu 19mm., Castek úðastútar stillanlegir og með froðutrektum  Froða í gegnum úðastúta.  Slöngukeflin eru bæði raf- og handdrifin.

Úttök frá dælu eru fjögur 65mm til hliðanna inni í skáp á hliðum.  Eins er lögn að háþrýstislöngukeflum.  Dælan getur fyllt á tank og eru afköst 1.700 l/mín. um 2" lögn.

Á þaki er úðabyssa af gerðinni Phorjne sem skilar 3.200 l/mín með loftstýrðum loka og froðutrekt. Úðabyssan rennur sjálfvirkt (vatnsafl) upp og niður úr þaki.





Loftstýring á lokum. Sog er um tvö 125mm Ø inntök og eitt 75mm Ø með spjaldlokum og Storz tengjum.  Lögn frá tanki að dælu 125mm Ø. Mælaborð dælunnar er með sogmæli, lágþrýstingsmæli, háþrýstingsmæli, vatnsmæli, froðumæli, snúningshraðamæli dælu, neyðarstöðvunarrofa, klst. mæli og viðvörunarljós fyrir olíuþrýsting og kælivatn.

Eins er viðvörunarljós fyrir loftbólumyndun og ýmis önnur viðvörunarljós í rofum fyrir opnun og lokun svo auðvelda megi þeim sem vinna við dæluna að sjá hvað sé opið eða lokað.

Stór hluti stjórntækja dælunnar eru loftstýrðar. Dælan er einstaklega vel útbúin.  Að vatnstanki er eitt inntak Storz B ásamt kúluloka og þrýstingsmæli.

Fremri hliðarskápur vinstra megin
Dælan er búin rafstýrðum gangráð sem tryggir stöðugan þrýsting í þrýstihluta dælunnar. Hann má aftengja og handstýra. Eins er dælan með varnarbúnað gagnvart óhreinindum sem valdið geta skemmdum. 

Froðubúnaður er loftstýrður og er frá 1% til 3% á allt afkastasvið dælunnar. Allt froðukerfið er gert úr efnum sem þola froðu og er úr sýruþolnumefnum.  Sýruþolið stál er notað.  Hægt er að dreina allt dælukerfið með tveimur lokum.

Á soghlið dælunnar er síubúnaður sem verja á hana óhreinindum bæði frá opnu og vatnstanki.  Tryggir örugga notkun dælunnar.  Samskonar miðstöð er í dælurými og ökumannshúsi þ.e. Webasto Air og eins í fremri skáp með lögnum í alla skápa. Þessar miðstöðvar verja vatns og froðukerfi fyrir frosti allt að 25°C.



Frá öftustu miðstöð er barkaúttak fyrir 15 m. barka sem nota á við að leggja hita að t.d. slysavettvang þar sem hugsanlega þarf að halda hita á slösuðum.

Hraðlosun er möguleg um 125mm Ø í vatnskar frá vinstri hlið. Losunin er með Storz tengi og spjaldloka. Eins má fylla á vatnstank um þessa lögn. 3 stk. 5" barkar í 3ja m. lengd eru í sérstökum festingum á þaki. Sigti með loka 125mm og vírkarfa. Storz minnkun125/110. Á þaki er einnig kassi fyrir 9.500 l. vatnslaug af gerðinni Fol-da-tank.

Framendinn
Ljósamastur er af Fireco gerð 2 x 1000W loftdrifið snúanlegt og ljóskastarar veltanlegir. Rafstöð er af Eismann gerð 5,3 Kva. og er hún í einum neðri hliðarskápa.

150 m. Mantex 3/4" slöngur skipt upp í 3 x 50 m. rúllur með D25 kopartengjum snúanlegum eru til framlengingar á háþrýstikefli.

Stigi af Makros gerð þrískiptur 8,1 m. langur á þaki yfirbyggingar. Stiginn uppfyllir EN 1147 staðal og vegur aðeins 30 kg.


Laus dæla af Rosenbauer Otter gerð er á útdraganlegum palli milli ökumannshúss og yfirbyggingar. Rosenbauer Otter dæla afkastar 1000 l/mín við 4 bar og 1,5 m. soghæð. Sú dæla vegur 66 kg. (tilb.) og stærð er 510L x 560B x 630H.

Innréttingar eru ýmsar í bifreiðinni og má nefna tvöfaldar slönguhillur, útdraganlegan pall fyrir lausa dælu og rafstöð. Snúanlegur veggur fyrir reykköfunartæki. Útdraganlegar skúffur tvær fyrir úðastúta og lykla ofl.

Allar leiðbeiningar og merkingar á bifreiðinni eru á íslensku og kemur hann þannig frá yfirbyggjanda. Allar tölvugerðar og smekklegar.