Tíunda bifreiðin var byggð fyrir Slökkvilið Akureyrar. Undirvagn af MAN 19.463 FAC gerð með 460 hestafla vél, fjórhjóladrifna með
sídrif, háu og lágu drifi, læsingum og rafmagnsgírskiptingu.

Mannskapshús er tvöfalt eða fyrir fimm manns.
Heildarlestun þ.e. bifreiðin fullbúin í útkall er um 75% en vatnstankur er 2.500 l. og froðutankur 100 l.
Rosenbauer slökkvidæla (NH30) afkastar 3.000 l. við 10 bar og 400 l. mín við 40 bar. Búnaður sem lokar fyrir tankáfyllingu svo tankur yfirfyllist
ekki.
Dælan er búin tveimur sjálfstæðum froðukerfum þannig að hægt er að hafa froðu á háþrýsti hliðinni og hreint
vatn á lágþrýstihliðinni eða froðu á báðum samtímis.
Helsti búnaður til viðbótar eru tvö 60 m. 3/4" rafdrifin slöngukefli með Rosenbauer Ne-Pi-Ro háþrýstibyssum staðsett í öftustu
hliðarskápum og UniPower rafall 6kW við vél.
Olíumiðstöð með lögnum í alla skápa ásamt auka miðstöð í áhafnarhúsi.
Loftdrifið ljósamastur 3 x 500W hæð 4,6 m.
Raufoss 12 m. þrískiptur brunastigi.
Huma reykköfunartækjastólar, Scott reykköfunartæki og tengingar fyrir talstöð og síma ofl. Verkfæraveggir, hillur, útdregnar skúffur,
slöngurekkar, kassi á þaki ofl. Orkuhlutfall þessarar bifreiðar er um 33 hestöfl á hvert tonn.
Í bifreiðinni er fullkomið sett af Holmatro björgunarbúnaði.
|