Brunavarnir Suðurnesja

Glæsilegur á planinu fyrir utan slökkvistöðina


Nítjánda bifreiðin er Ford/Rosenbauer slökkvi og björgunarbifreið. Bifreiðin er af gerðinni Ford 550XLT 4x4 sjálfskipt með tvöföldu húsi.

Í yfirbyggingu sem er byggð úr áli og plasti er vatnstankur 800 ltr, froðutankur 100 l., Rosenbauer NH20 háþrýst og lágþrýst dæla 2000 l. við 10 bar og 200 l. við 40 bar, dælan er knúin af Hatz diesel vél og því óháð bílvélinni, inntak 4" úttök 2 1/2" og 1 1/2" öll með Storz tengjum.

Froðublandari fyrir há og lágþrýsting er sambyggður við dælu. Rafdrifið háþrýstislöngukefli með 50 mtr ¾" slöngu, loftdrifið ljósamastur 4,6 mtr. með 3 x 500W kösturum, dráttarspil með festingum að aftan og framan.

Bifreiðin kom með festingum og innréttingum frá framleiðanda svo sem, útdregnum festingum fyrir reykköfunartæki og aukakúta, skúffu fyrir ofan dælu, föstum hillum, útfellanlegum verkfæravegg, snúningspalli fyrir björgunartæki og festingum fyrir ýmsan búnað. Hér voru settir tveir Ziamatic reykkafarastólar í bifreiðina

Hér má sjá innréttingar og Holmatro björgunartæki


Ýmis tæki og búnaður er í bifreiðinni m.a. ný Holmatro björgunartæki  Búnaðurinn samanstendur af dælu með tveimur slönguhjólum með 25 m. slöngum í grind á snúanlegum palli sem drífur tvö tæki samtímis, aukadælu af gerðinni TPU15 sem er létt og meðfærileg dæla, klippum, glennum, tjakk, pedalaklippum og fl.

Öllum búnaði hefur verið einstaklega vel fyrir komið og þess gætt að ofhlaða ekki skápa og að þægilegt sé að nálgast búnað og stjórntæki.


Fyrir utan slökkvistöðina tilbúinn í útkall


Tuttugasta og önnur bifreiðin er árgerð 2001 af gerðinni Rosenbauer/Scania. Bifreiðin er byggð á Scania P94 4x2 með tvöföldu áhafnarhúsi, 310 hestafla Euro3 vél, sjálfskiptingu, spólvörn, driflæsingu að aftan, ABS hemlum og stillanlegri loftpúðafjöðrun.

Myndin var tekin við afhendingu

 

Í yfirbyHér má sjá innréttingar eins og útdraganlegan verkfæraveggggingu sem er smíðuð úr áli og plasti er 3000 lítra vatnstankur og 200 lítra froðutankur, Rosenbauer NH30 háþrýst og lágþrýst brunadæla með afköst 3.000 l. við 10 bar og 400 l. við 40 bar.

Úttök á dælunni eru 8. Þar af 2 frá háþrýstihluta dælunnar og eru beintengd slöngukeflum með 60 mtr slöngum og úðastútum. Tveir sjálfstæðir froðublandarar eru á dælunni, annar fyrir háþrýsting og hinn fyrir lágþrýstihluta dælunnar.

Þannig gefst kostur á að vera t.d. með froðu á háþrýstihluta en hreint vatn á lágþrýstihlutanum.

 

Hér sést verkfæraveggur, rafmagnstafla og stjórnborð fyrir rafal.UNIPOWER 6KW 220 Volta rafall er beintengdur við vél bifreiðarinnar.

Einnig er í bifreiðinni: loftknúið ljósamastur, Ziamatic festingar fyrir Scott reykköfunartæki í sætum í áhafnarhúsi, 12 m. brunastigi svo og innréttingar, t.d. hillur verkfæraveggir, slöngurekkar ásamt festingum fyrir hin ýmsu tæki slökkviliðsins.

Af lausum búnaði má nefna Rosenbauer úðastúta, Scott reykköfunartæki, Guardsman og Getex brunaslöngur 1 1/2" - 2 1/2"- 3" og 4", BB-CBC greinistykki ásamt ýmsum búnaði og verkfærum sem Brunavarnirnar áttu fyrir.

 

Við hönnun og byggingu bifreiðarinnar var hugað sHér sjást slöngurekkar og geymslur fyrir reykköfunartækjakútaérstaklega að því að hafa allt aðgengi að skápum og tækjum sem þægilegast til að auðvelda vinnu við bifreiðina.

Einn liður í þessu var að fá bifreiðina með loftpúðafjöðrun, sem gefur möguleika á að lækka bifreiðina þegar komið er á brunastað.

 

 

 


16.12.01 Hér má sjá myndir af afhendingu