Alcoa Fjarðaál

Slökkvibifreið af gerðinni Rosenbauer Mercedes Benz SLF 5100/500/250. Bifreiðin er fjórhjóladrifin, 350 hestöfl og með sjálfvirkri skiptingu.

Í bifreiðinni er 5.100 l. vatnstankur, 500 l. froðutankur og 250 kg. duftkúla. Mercedes Benz undirvagn með drif á öllum hjólum og Telligent gírskipting. Tvær úðabyssur á þaki og framstuðara.

Rosenbauer NH40 brunadæla há og lágþrýst sem afkastar 4000 l/mín við 10 bör og 400 l/mín við 40 bör.
Froðukerfið er mjög fullkomið og öflugt enda hannað og smíðað til að fást við iðnaðarelda.

Rosenbauer Mercedes Benz SLF 5100/500/250

Gerð: SLF 5100/500/250.

Undirvagn: MB Actros 1835 4x4, 350 hestöfl, Telligent sjálfvirk skipting.

Ökumannshús: Ekstra lengd.

Yfirbygging: Rosenbauer einingar með skápum úr áli og vatns og froðutankar úr trefjaplasti.

Vatnstankur: 5100 lítra.

Froðutankur: 500 lítra.

Duftkúla: 250 kg.

Brunadæla: Rosenbauer NH40 sem afkastar 4000 l/mín við 10 bör og 400 l/mín við 40 bör, staðsett miðskips.

Úðabyssur:
Á þaki: Rosenbauer RM24M handstýrður með  0-2400 l/mín. afköst.
Á framstuðara: Rosenbauer RM25E rafstýrður með 1200 eða 2400 l/mín. afköst.

Annar útbúnaður: Háþrýstislöngurúllur, froðublöndunarkerfi, stýring á dælu og úðabyssu úr ökumannshúsi, sjálfsettar keðjur og bakmyndavél.

Ýmsan annan aukabúnað seldum við með bifreiðinni og munum kynna hann á næstunni.