Slökkvilið Ísafjarðar


Fimmta bifreiðin var byggð fyrir Slökkvilið Ísafjarðar, en þar er um að ræða slökkvibifreið af Mercedes Benz 1434 gerð með 340 hestafla vél. Bifreiðin er fjórhjóladrifin og búin sídrifi.

Vatnstankur er 2.000 l og froðutankur 200 l. Rosenbauer slökkvidæla (NH30) afkastar 3000 l./mín við 10 bar og háþrýstihlið skilar 400 l./mín við 40 bar.

Dælan er búin tveimur sjálfstæðum froðukerfum þannig að hægt er að hafa froðu á háþrýstihliðinni og hreint vatn á lágþrýstihliðinni eða froðu í báðum samtímis. Sjálfvirkt sog.

Bifreiðin í Reykjavík. Þorbjörn slökkvistjóri undir stýri

Kominn til Ísafjarðar og tilbúinn í útkall

Bifreiðin er búin tveimur háþrýstikeflum rafdrifnum með 70 m. af 1" háþrýstislöngum og Rosenbauer Ne-Pi-Ro háþrýstibyssum.

Ýmsar innréttingar þ.e. útdraganlegir pallar eða sleðabúnaður er fyrir ýmsan búnað eins og brunaslöngur, reykköfunartæki, rafstöð og lausa slökkvidælu. Raufoss 10 m. þrískiptur brunastigi og sogbarkar á þaki.

Tengingar fyrir talstöð og síma. Bifreiðin tekur fimm manns. Orkuhlutfall þessarar bifreiðar er rúm 28 hestöfl á hvert tonn og lestun 85% af heildarþyngd.

Slökkvilið Ísafjarðar kom síðan fyrir ýmsum nýlegum búnaði eins og Holmatro björgunatækjum og klippum, lausri slökkvidælu ofl.