KZPT hjálmar

KZPT Calisia hjálmarnir sem við höfum valið að bjóða uppfylla allir EN443:2008 staðalinn en einnig EN16471 og EN16473. Í Calisia slökkviliðsmanna hjálmunum eru trefjaplast og Kevlar þræðir. Ýmsar stærðir á höfuðbandi að ræða eftir gerðum.

Kynning á KZPT hjálmum á myndbandi

 

Calisia Vulcan C V102 hjálmar

Calisia Vulcan CV 102 hjálmar

Vnr. 330111 hjálmur m/hlífðargleri (gulllitað) og gleraugum

Hlífðarhjálmur sem uppfyllir staðal EN443:2008. Höfuðband er stillt með hnappi innan í hjálminum, Stærðarsvið er 54 til 62 sm. og aðeins ein stærð. Eins fáanlegt 51 til 65 sm.  Innri stillingar á hæð og fjarlægð frá öryggisgleri.  Öryggisglerið er húðað með rispuvörn að utanverðu og móðuvörn að innan. Efna og hitavörn.  Slökun er á hökubandi (Nomex). Hnakkahlíf og svartur geymslupoki. Hjálmurinn vegur aðeins 1570 gr.. Hitaþol: Samkvæmt staðli 90°C/15mín. og í kjölfarið leiftur logar 1000°C +/-50°C.

Aukahlutir: Ólar f.maska, festingar fyrir ljós og stilling á gleraugum.

Litir: Gulur, rauður, blár, svartur, hvítur, appelsínugulur, grænn, sjálflýsandi og krómaður.


Calisia Vulkan Sjálflýsandi hjálmur

Calisia Vulcan CV 102 hjálmar
Vnr. 330111 hjálmur m/hlífðargleri og gleraugum

Sami hjálmur og hér að ofan en hann er fáanlegur líka sjálflýsandi í einum lit sem komið er. Hugsanlega verða fáanlegir fleiri litir.

Hjálmafesting fyrir Mactronic hjálmaljós (Leiðbeiningar) 

Iskra díóðuljós

ISKRA díóðu hjálmaljós

Vnr. 

ISKRA díóðu hjálmaljós sem eru gerð sérstaklega fyrir Calisia hjálmana sem við seljum. Þessi gerð er einnig fyrir eldri gerðir af Calisia hjálmum þ.e. AK gerðunum sem við byrjuðum á að selja hér.

Viðurkenning IEP 14 ATEX 0192Tilskipun 94/9/EC
Staðall EN 60079:2009
Logavörn EN443:2008 p.4.1
Orka 4 stk. AA Alkaline rafhlöður
Ljósagerð LED díóður CREE LED
Birtustig 120 lm
Endingartími rafhlaðna lágmark 72 klst.
Vatns/rakavörn IP67
Lengd ljósgeisla um 100m.
Þyngd án rafhlaðna 128 g.

Bæklingur

Vulkan CV103 hjálmur

Calisia Vulcan CV 103 hjálmar 
Vnr. 330109 hjálmur m/hlífðargleri (gulllitað)

Hlífðarhjálmur sem uppfyllir staðal EN443:2008. Ekki eins síður og CV102 og því þægilegri fyrir reykkafara. Höfuðband er stillt með hnappi innan í hjálminum, Stærðarsvið er 47 til 68 sm. og aðeins ein stærð.  Innri stillingar á hæð og fjarlægð frá öryggisgleri.  Öryggisglerið er húðað með rispuvörn að utanverðu og móðuvörn að innan. Efna og hitavörn.  Slökun er á hökubandi (Nomex). Hnakkahlíf og svartur geymslupoki. Hjálmurinn vegur aðeins 1.390 gr.. Hitaþol: Samkvæmt staðli 90°C/15mín. og í kjölfarið leiftur logar 1000°C +/-50°C.

Aukahlutir: Ólar f.maska, festingar fyrir ljós 

Litir: Gulur, rauður, blár, svartur, hvítur, appelsínugulur, grænn, sjálflýsandi og krómaður.

Er að öllu leyti eins og CV102 nema ekki með gleraugu og er styttri. Hentar betur reykköfurum ef maski er mjög víður. 180 g. léttari en CV102.

Bæklingur

Calisia Tytan Hot hlífðarhjálmur

Calisia Tytan Hot 101.03 hjálmar
Vnr. 330113

Uppfyllir EN397:1995 (öryggishjálmur), EN12492:2000 (Klifurhjálmur), EN442:1997 (slökkvilið - logavörn), EN443:2008 (efnavörn). Fyrir höfuðstærð 52 - 66 sm og vegur 675gr. eftir því hvaða útfærsla er valin. Með loftræstiraufum.

Hjálmar þessir eru m.a. fyrir björgunarsveitir, slökkvilið, ýmsan iðnað og frístundahópa svo sem í hellaskoðun eða klettaklifur. Þessi gerð (bláir) er m.a. í sjúkrabifreiðum RkÍ

Aukahlutir: Gleraugu, eyrnahlífar, hlífðargler, hnakkahlíf, festingar fyrir reykmaska, festingar fyrir ljós og hnakkahlíf.

Litir: Hvítur, blár, rauður, gulur, svartur, appelsínugulur, grár og gulgrænn/sjálflýsandi.

Bæklingur

Calisia Tytan Hot 101.04 Hjálmur

Calisia Tytan Hot 101.04 HTM102 hjálmar (Light Rescue)
Vnr. 330112

Uppfyllir EN16471:2014 (slökkvilið - Wildland), EN16473:2014 (Slökkvilið - björgun). Fyrir höfuðstærð 52 - 65 sm og vegur 675gr. eftir því hvaða útfærsla er valin. Með loftræstiraufum.

Hjálmar þessir eru m.a. fyrir björgunarsveitir, slökkvilið, ýmsan iðnað og frístundahópa svo sem í hellaskoðun eða klettaklifur.

Aukahlutir: Gleraugu, eyrnahlífar, hlífðargler, hnakkahlíf, festingar fyrir reykmaska, festingar fyrir ljós og hnakkahlíf.

Litir: Hvítur, blár, rauður, gulur, svartur, appelsínugulur, grár og gulgrænn/sjálflýsandi.

Bæklingur

 

.....Slökkvitæki, slökkvitækjaþjónusta, reykskynjarar, eldvarnateppi, brunaslönguhjól, gaskynjarar, kolsýrlingsskynjarar, fellistigar, keðjustigar, lyfjaskápar, neyðarljós, neyðarmerki.....