Brunavarnir Árnessýslu mars 2005

Brunavarnir Árnessýslu fengu í mars 2005 tvær slökkvibifreiðar sem staðsettar eru á slökkvistöðvunum á Laugarvatni og í Reykholti í Biskupstungum. Þetta voru fyrstu slökkvibifreiðarnar á Íslandi frá Wawrzaszek.
Tvær alveg eins


Slökkvibifreiðarnar eru byggðar og útbúnar af slökkvibifreiðaframleiðandum Wawrzaszek í Bielsko-Biala í Póllandi. Undirvagnar eru af gerð Renault Kerax 420.19 4x4. Heildarburðargeta hvorrar bifreiðar er 19 tonn en í þessari útfærslu er heildarþyngd bifreiðar 17 tonn.

Hestöfl pr. tonn eru rúm 24,2 og telst það mjög kraftmikil slökkvibifreið. Hestöfl vélar eru 412 og hámarkshraði er 125 km/klst. Bifreiðarnar eru með sídrifi, háu og lágu drifi, læsingum og fl. Hjólbarðar (Michelin) eru heilsárshjólbarðar með nöglum.

Dæla og dælustjórnborð Bifreiðarnar eru byggðar eftir evrópskum stöðlum og eru þessar bifreiðar t.d. byggðar eftir EN 1846-1 staðli.

Allur búnaður sem er í bifreiðunum er evrópskur og af þeim gerðum sem vel er þekktur hérlendis eins og t.d. Ruberg dælur (sænskar) sem eru m.a. í slökkvibifreiðum á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri, Fáskrúðsfirði, Hrísey og síðan en ekki síst á Selfossi.

Líklega eru hér um 10 til 15 Ruberg dælur af svipaðri gerð. Dælugeta þessara dælna er sambærileg við þá dælu sem er í stærri slökkvibifreiðinni á Reykjavíkurflugvelli þ.e. 4.000 l/mín.

Yfirbyggjandi er stærsti framleiðandi slökkvibifreiða í þessum hluta Evrópu. Framleiða allar gerðir slökkvibifreiða og eins gáma fyrir slökkvilið en ekki körfu og stigabifreiðar. Fyrirtækið var stofnað 1988 og eru starfsmenn þess 340 talsins. Á ári hverju eru seldar um 250 til 300 bifreiðar og markaðurinn í Evrópu og svo Asíu. M.a.eru þeir undirverktakar við smíði og yfirbyggingar fyrir framleiðendur í Þýskalandi og á Norðurlöndum.

Hér fer á eftir lýsing á helsta búnaði í bifreiðunum

Í ökumannshúsi sem er af Global gerð þ.e. 400 mm. lengra en venjulegt ökumannshús eru þrjú sæti, ljós, sjálfstætt hitakerfi (Webasto miðstöð), handstýrður,ljóskastari, hitaðir speglar og aukaspeglar, ljós í þrepum sem kvikna við opnun hurða, endurskin á hurðum.
Fremri hliðarskápur með vegg fyrir reykköfunartæki
Sólskyggni á þaki merkt slökkvibíll. Öryggisbelti í sætum og áklæði á sætum (hreinsanlegt).  Fjaðrandi ökumannsæti, sírena með hljóðnema, blá stróp ljós í grilli að framan og aftan á þaki, lofthorn og strópljósarenna á þaki. 

Varnargrindur á öllum ljósum. Hljóðmerki tengt bakkljósi. Forrituð Motorola talstöð. Margs konar viðvörunarljós eins og ef hurðir eða ástig eru opin í yfirbyggingu, ljósamastur eða úðabyssa uppi, hleðslutenging í sambandi, ljós í skápum og vatns og froðu tankamælar. Innsetning dælu.

Hleðslutæki fyrir talstöðvar. 24V rafkerfi, rafall 2.200W og rafgeymar 2 x 180Ah. Höfuðrofi.
Efni yfirbyggingar úr ryðfríum efnum, trefjaplasti og byggt með samlokuaðferð og álprófílar sem undirstöður fyrir innréttingar. Yfirbyggingin er eingöngu úr trefjaplasti gegnheilu. Ekkert stál eða krossviður. Þak er vinnupallur með upphleyptum álplötum, burður 450 kg.

Tveir skápar á hvorri hlið og einn að aftan.  Gegnum gangandi fremri skápur á hlið.  Rykþéttar rennihurðir úr áli með læsingum.


Innréttingar á hlið
Ljós kviknar í skápum við opnun og eins er rofi í ökumannshúsi.  Vinnuljós allan hringinn sem gefa 5 til 15 Lux í 1 m. fjarlægð.  Hillur og skúffur með læsingar í opinni stöðu.  Þær innréttingar sem staðið geta 25 sm. út frá bifreiðinni eru með endurskin.

Öll handföng, hurðir og lokur er gert fyrir hanskaklæddar hendur.  Vatnshalli í skápum. Yfirborð þaks og gólf í skápum klætt með upphleyptum seltuvörðum álplötum.

Við alla skápa eru fellanleg ástig sem um leið eru hurðir fyrir neðri skápa. Vatnstankur tekur 6.000 l. úr trefjaplastefni með tilheyrandi búnaði.  Froðutankur tekur 200 l. og er úr trefjaplastefnum með tilheyrandi búnaði.  Möguleiki á að fylla froðutank frá þaki og svo frá jörðu.  Brunadælan er staðsett að aftan, upphituð frá kælikerfi bifreiðar.

Dæla er seltuvarin úr bronzi og stáli.  Tveggja þrepa 4.000 l/mín við 10 bar og 250 l/mín við 40 bar.  Hámark vatns á háþrýstiþrepi 150 l/mín. miðað við slöngustærð. Gerð Ruberg R40/2.5.

Froðukerfið er stillanlegt við 1% eða 3% og vatnsmagn. Allar stýringar froðukerfis loftstýrðar. Háþrýstislöngukefli með 90 m. slöngu 19mm., Castek úðastútur stillanlegur og með froðutrekt.  Froða í gegnum úðastút.  Slöngukeflið er bæði raf- og handdrifið.

Litla myndin sýnir úttök og inntak á vatnstank en stóra myndin er tekin hinum megin og sést þá froðu inn og úttak Úttök frá dælu eru fjögur 65mm til hliðanna inni í skáp á hliðum.  Eins er lögn að háþrýstislöngukefli.  Dælan getur fyllt á tank og eru afköst 1.700 l/mín. um 2" lögn.

Loftstýring á loka. Sog er um tvö 125mm Ø inntök og eitt 75mm Ø með spjaldlokum og Storz tengjum.  Lögn frá tanki að dælu 125mm Ø. Mælaborð dælunnar er með sogmæli, lágþrýstingsmæli, háþrýstingsmæli, vatnsmæli, froðumæli, snúningshraðamæli dælu, neyðarstöðvunarrofa, klst. mæli og viðvörunarljós fyrir olíuþrýsting og kælivatn.
Eins er viðvörunarljós fyrir loftbólumyndun og ýmis önnur viðvörunarljós í rofum fyrir opnun og lokun svo auðvelda megi þeim sem vinna við dæluna að sjá hvað sé opið eða lokað.

Stór hluti stjórntækja dælunnar eru loftstýrðar. Dælan er einstaklega vel útbúin.  Að vatnstanki er eitt inntak Storz B ásamt kúluloka og þrýstingsmæli.
Dælumælaborð
Dælan er búin rafstýrðum gangráð sem tryggir stöðugan þrýsting í þrýstihluta dælunnar. Hann má aftengja og handstýra. Eins er dælan með varnarbúnað gagnvart óhreinindum sem valdið geta skemmdum. 

Froðubúnaður er loftstýrður og er frá 1% til 3% á allt afkastasvið dælunnar. Allt froðukerfið er gert úr efnum sem þola froðu og er úr ryðfríum efnum.  Ryðfrítt stál er notað.  Hægt er að dreina allt dælukerfið með tveimur lokum.
Dælumælaborð hægra megin Á soghlið dælunnar er síubúnaður sem verja á hana óhreinindum bæði frá opnu og vatnstanki.  Tryggir örugga notkun dælunnar.  Samskonar miðstöð er í dælurými og ökumannshúsi þ.e. Webasto Air og eins í fremri skáp með lögnum í alla skápa. Þessar miðstöðvar verja vatns og froðukerfi fyrir frosti allt að 25°C.
Frá öftustu miðstöð er barkaúttak fyrir 15 m. barka sem nota á við að leggja hita að t.d. slysavettvang þar sem hugsanlega þarf að halda hita á slösuðum. Upplýsingar um lagnakerfið eru á dælunni
Hraðlosunarloki 150 mm. Hraðlosun er möguleg um 125mm Ø í vatnskar frá vinstri hlið. Losunin er með Storz tengi og spjaldloka. Eins má fylla á vatnstank um þessa lögn. 3 stk. 5¿ barkar í 3ja m. lengd eru í sérstökum festingum á þaki. Sigti með loka 125mm og vírkarfa. Storz minnkanir 125/110.
Ljósamastur er af Fireco gerð 2 x 1000W loftdrifið snúanlegt og ljóskastarar veltanlegir. Rafstöð er af Eismann gerð 4 Kva.og er hún í einum neðri hliðarskápa.

150 m. Mantex 3/4" slöngur skipt upp í 3 x 50 m. rúllur með D25 kopartengjum snúanlegum eru til framlengingar á háþrýstikefli.


Stigi af Makros gerð þrískiptur 8,1 m. langur á þaki yfirbyggingar. Stiginn uppfyllir EN 1147 staðal og vegur aðeins 30 kg.

Lausar dælur af Rosenbauer Otter gerð eru á útdraganlegum palli milli ökumannshúss og yfirbyggingar. Rosenbauer Otter dæla afkastar 1000 l/mín við 4 bar og 1,5 m. soghæð. Sú dæla vegur 66 kg. (tilb.) og stærð er 510L x 560B x 630H.

Innréttingar eru ýmsar í bifreiðunum og má nefna tvöfaldar slönguhillur, útdraganlega palla fyrir lausa dælu og rafstöð. Snúanlegur veggur fyrir reykköfunartæki. Útdraganlegar skúffur tvær fyrir úðastúta og lykla ofl.

Innrétting í fremsta skáp vinstra megin
Dælumælaborð vinstra megin Allar leiðbeiningar og merkingar á bifreiðunum eru á íslensku og þeir koma þannig frá yfirbyggjanda. Allar tölvugerðar og smekklegar.