Við höfum frá miðju ári 1990 boðið og selt slökkvibifreiðar. Fram til dagsins í dag, höfum við selt alls 56 slökkvi og björgunarbifreiðar byggðar hjá Rosenbauer (Egenes) AS í Flekkefjörð í Noregi, ISS-Wawrzaszek í Póllandi og Magirus í Þýskalandi. Stór hluti þess lausa búnaðar sem er í bifreiðunum er frá okkur. Einnig höfum við selt verðmætabjörgunar- gáma, slöngugáma og vatnstanka frá sömu aðilum. Sjáið frekari upplýsingar undir hnappnum slökkvibifreiðar til vinstri.
ISS-Wawrzaszek í Bielsko-Biala í Póllandi byggir eftir evrópskum stöðlum og eru flestar bifreiðar byggðar eftir EN 1846-1 staðli. Sá búnaður sem er í bifreiðinum er evrópskur og af þeim gerðum sem vel eru þekktar hérlendis eins og t.d. Ruberg dælur (sænskar) sem eru m.a. í slökkvibifreiðum á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri, Þórshöfn, Fáskrúðsfirði, Eskifirði, Egilsstöðum, Selfossi, Ísafirði, Ólafsvík, Borgarnesi, Sauðárkróki, Árnesi, Laugarvatni, Keflavík, Þorlákshöfn, Keflavíkurflugvelli, Reykjavíkurflugvelli og Reykholti Biskupstungum.
ISS-Wawrzaszek er stærsti framleiðandi slökkvibifreiða í þessum hluta Evrópu. Framleiða allar gerðir slökkvibifreiða, körfubifreiða og eins gáma fyrir slökkvilið en ekki enn sem komið er stigabifreiðar. Fyrirtækið var stofnað 1988 og eru starfsmenn þess 400 talsins. Á ári hverju eru seldar um 350 til 600 bifreiðar og markaðurinn í Evrópu og svo Asíu. Skoðið bækling. Þar má sjá nokkrar bifreiðar sem eru hérlendis.
Magirus er með stærstu framleiðendum slökkvibifreiða og stigabifreiða í Evrópu. Framleiða allar gerðir slökkvibifreiða, stigabifreiða og eins gáma fyrir slökkvilið en ekki enn sem komið er stigabifreiðar. Fyrirtækið var stofnað 1864 og er hluti Iveco Group frá 2022 en áður CNH Industrial. Skoðið heimasíðu.
Hér koma svo myndir og teikningar af ýmsum gerðum slökkvibifreiða sem við höfum selt.
Vekjum athygli á að teikningar þessar eru eign ISS-Wawrzaszek og öll eftirprentun eða eftiröpun óleyfileg.
Egenes Brannteknikk AS (áður Rosenbauer AS) í Flekkefjörd í Noregi er samstarfsaðili Rosenbauer International í Leonding Linz Austurríki. Frá árinu 1992 hafa 25 slökkvibifreiðar verið byggðar af þessum framleiðanda fyrir Íslendinga. M.a. voru EBÍ útboðs slökkvibifreiðarnar byggðar þar. Sérhæfing er mikil og er framleiðslan á ári um 70 bifreiðar. Egenes Brannteknikk er umboðsaðili Metz stigabifreiða.
Stór hluti búnaðar í bifreiðum Egenes Brannteknikk eins og brunadælur, stýribúnaður, lokar, stútar ofl. er framleitt af Rosenbauer International. Ef búnaður og tæki eru ekki framleidd af Rosenbauer er um að ræða aðra þekkta framleiðendur.
Eins höfum við flutt inn slökkvibifreiðar beint frá Rosenbauer International í Leonding Linz Austurríki.og eru þær bifreiðar á Akureyri og Fjarðabyggð.
Ólafur Gíslason & Co hf. Eldvarnamiðstöðin er 100 ára gamalt fyrirtæki og höfum við sinnt þjónustu við slökkviliðin í landinu undanfarin 49 ár en innflutningi og þjónustu á vörum tengdum brunavörnum í meira en 80ár. Á síðastliðnum 33 árum höfum við flutt inn og selt nánast allar nýjar slökkvibifreiðar til landsins eða 56 bifreiðar og einnig tvær sjúkrabifreiðar.
Við teljum okkur búa yfir mikilli þekkingu á þessu svið og höfum valið til samstarfs áðurnefnda yfirbyggjendur. Það er að vel skoðuð máli en við höfum fylgst með þessum fyrirtækjum um nokkuð langt skeið. Við fullyrðum að verð er mjög hagstætt, gæði mikil og búnaður frá V-Evrópu og að auki þekktur hérlendis. Eins er byggt eftir þeim stöðlum sem við þekkjum. Við höfum einnig látið byggja bifreiðarnar eftir kröfum viðskiptavina og þeim kröfum sem gerðar eru hérlendis m.a. hvað varðar dælu frágang og lagnir.
Ólafur Gíslason & co. hf. Við höfum komið að endurbyggingu og breytingum á tveimur slökkvibifreiðum sem breytt var á þann hátt að þær mátti nota sem flugvallaslökkvibifreiðar á minni flugvelli. Við höfum selt slökkvibúnað á pallbifreiðar þ.e. háþrýstislökkvibúnað með vatnstanki og froðubúnaði. Við höfum unnið ýmis verkefni varðandi slökkvibúnað og slökkvistörf fyrir fyrirtæki og stofnanir svo sem fyrir, Alcan, Alcoa, Norðurál, Elkem, CCP, Flugmálastjórn, Isavia, Reykjavíkurhöfn, Orkuveituna, Olíudreifingu og Landhelgisgæsluna.