Brunavarnir Skagafjarðar 2006

Í dag 9. september 2005 var gengið frá samningi við Sveitarfélagið Skagafjörður um slökkvibifreið yfirbyggða hjá ISS-Wawrzaszek. Bifreiðin verður afgreidd fyrri hluta árs 2006.


Sveitarstjórinn Ársæll Guðmundsson og Benedikt Einar Gunnarsson framkvæmdastjóri Ólafs Gíslasonar & co. hf. handsala samninginn.


Bifreiðin er af TLF11000/200 gerð og er undirvagn af gerð Renault Kerax 420.27 6x6. 3.850 mm. + 1.350 mm. Heildarburðargeta bifreiðar er 27 tonn og má gera ráð fyrir að í þessari útfærslu yrði bifreiðin um 25,5 tonn. Hestöfl pr. tonn eru rúm 16,16 og telst það kraftmikil slökkvibifreið með vatnsmagn sem þessi. Hámarkshraði er 125 km/klst.


Myndirnar eru af svipaðri bifreið og Brunavarnir Skagafjarðar fá.



Í ökumannshúsi eru þrjú sæti, ljós, sjálfstætt hitakerfi (Webasto miðstöð), handstýrður ljóskastari, hitaðir speglar og aukaspeglar, ljós í þrepum sem kvikna við opnun hurða, endurskin á hurðum. Renault útvarp FM/AM og Motorola forrituð talstöð.

Öryggisbelti í sætum og áklæði á sætum hreinsanlegt. Fjaðrandi ökumannsæti, sírena með hljóðnema, blá stróbljós í grilli að framan og aftan, strópljósarenna á þaki og lofthorn. Hljóðmerki tengt bakkljósi. 24V rafkerfi, rafall 2.200W og rafgeymar 2 x 180Ah. Höfuðrofi. Litur bifreiðar rauður og merkingar. Varahjólbarði á þaki laus.

Efni yfirbyggingar úr ryðfríum efnum, trefjaplasti og álprófílum.  Þak er vinnupallur með upphleyptum álplötum, burður 450 kg./m2. Tveir skápar á hvorri hlið og einn að aftan. Rykþéttar rennihurðir úr áli með læsingum. Ljós kviknar í skápum við opnun og eins er rofi í ökumannshúsi. Vinnuljós sem gefa 5 til 15 Lux í 1 m. fjarlægð. Öll handföng, hurðir og lokur eru gerðar fyrir hanskaklæddar hendur. Vatnshalli í skápum. Yfirborð þaks er með stömu yfirborði og gólf í skápum er með stömu yfirborði en hægt að klæða með upphleyptum álplötum. Vatnstankur 11 m3 úr trefjaplastefni með tilheyrandi búnaði. Froðutankur 200 dm3 úr trefjaplastefnum með tilheyrandi búnaði.  Möguleiki á að fylla froðutank frá þaki og svo frá jörðu.  Brunadælan er staðsett að aftan, upphituð frá kælikerfi bifreiðar.

Hér er teikning af bifreiðinni

Dæla seltuvarin úr bronzi og stáli. Tveggja þrepa 4000 l/mín við 10 bar og 250 l/mín við 40 bar. Hámark vatns á háþrýstiþrepi 150 l/mín. Gerð Ruberg R40/2.5. Froðukerfið er frá tanki og við sog frá opnu. Háþrýstislöngukefli ¾¿ með 90 m. slöngu, úðastútur stillanlegur og með froðutrektum. Froða í gegnum úðastút. Slöngukeflið er raf- og handdrifið. Úttök frá dælu eru fjögur 75mm til hliðanna inn í skáp. Eins er lögn að háþrýstislöngukefli. Dælan getur fyllt á tank. 75mm rör til áfyllingar tanks með dælu og loftloki þar á (um 2.300 l/mín). 75mm rör frá dælu og upp á þak fyrir úðabyssu. Nauðsynlegir lokar. Sjálfvirk kæling með útrennsli. Sog er annars vegar 125mm Ø og 75mm Ø. Lögn frá tanki að dælu 125mm Ø. Mælaborð dælunnar er með sogmæli, lágþrýstingsmæli, háþrýstingsmæli, vatnsmæli, froðumæli, snúningshraðamæli dælu, stöðvunarrofa á bílvél, klst. mæli og viðvörunarljós fyrir olíuþrýsting og kælivatn.  Dælan er einstaklega vel útbúin.  Að vatnstanki eru tvö inntök með einstreymisloka Storz B ásamt kúluloka til að taka vatn frá brunahana með þrýstimæli.

Dælan er búin rafstýrðum gangráð sem tryggir stöðugan þrýsting í þrýstihluta dælunnar. Það þýðir að hægt er að skilja dæluna eftir mannlausa í slökkvistarfi því hún stýrir þeim þrýstingi sem óskað er eftir. Eins er dælan með varnarbúnað gagnvart óhreinindum sem valdið geta skemmdum. Froðublandari er mekanískur er frá 1% til 3% á allt afkastasvið dælunnar. Frávik ±0,5%. Froðukerfi á háþrýsting og lágþrýsting. Sitthvor froðublandari með íblöndun á öll úttök. Stilling með tilliti til vatnsmagns. Val um 1 til 3%. Allt froðukerfið er gert úr efnum sem þola froðu og er úr ryðfríum efnum. Ryðfrítt stál er notað.  Hægt er að dreina allt dælukerfið með einum loka.  Miðstöðvar eru í einhverjum skáp í yfirbyggingu, dælurými og ökumannshúsi af Webasto Air Top gerð. Auka úttengi frá öftustu miðstöð með 15 m. barka með rofa til að skipta á milli hita í skáp og barka til upphitunar á slysavettvangi. Þessar miðstöðvar verja vatns- og froðukerfi fyrir frosti allt að ¿25°C. Á soghlið dælunar er síubúnaður sem verja á hana óhreinindum bæði frá opnu og vatnstanki. Tryggir örugga notkun dælunnar. Ljósamastur er loftdrifið með ljóskösturum 2 x 1000W. og snúan- og veltanlegir með stýringu. Rafstöð 4,5 kW á útdraganlegum palli tengd ljósamastri. 

Eins er í mælaborði í ökumannshúsi ljós fyrir vatns og froðutank, ljósamastur eða úðabyssu, hurðir og ástig opin, hleðslutengingu, skápaljós og loftflautu. Öllum miðstöðvum stýrt þaðan.

Öll gólf og ástig í skápum klædd með upphleyptu áli. Prófílar sem er stillanlegir í hæð eða breidd í skápum fyrir hillur og innréttingar.

10" Flýtilosun frá tank um spjaldloka. Staðsett á hlið.

Myndasería

10.04.06 Hér er teikning af innréttingum í bifreiðinni

03.05.06 Hér eru myndir af bifreiðinni

19.05.06 Myndir frá kennslu á bifreiðina

30.05.06 Myndir frá formlegri afhendingu