Fireco slökkvibúnaður í bifreiðar

Fireco heimasíðan


Fireco háþrýstislökkvibúnaður

Fireco á Ítalíu framleiðir ýmsan búnað í slökkvibifreiðar eins og ljósamöstur, rennihurðir og háþrýstan slökkvibúnað sem samanstendur af dælu með vél, slöngukefli, úðastút, vatns og froðutanki á þar til gerðum palli tilbúinn til innsetningar á pallbíla eða inn í yfirbyggðar bifreiðar. Einfaldur viðhaldslítill búnaður.

Að líkindum eru flestar slökkvibifreiðar hérlendis með ljósamastur af Fireco gerð.

Háþrýstur slökkvibúnaður

Fyrirtækið Fireco hefur um áratuga skeið verið framalega í hönnun og þróun á háþrýstum sambyggðum slökkvibúnaði þar sem notaðar eru stimpil og membram dælur. Vegna þekkingaröflunar og með stöðugum rannsóknum og í samkeppni tekst Fireco að bjóða 120 mismunandi gerðir af slíkum slökkvibúnaði til að uppfylla óskir viðskiptavina sinna. Árlega eru framleiddar um 800 einingar af slíkum slökkvibúnaði fyrir viðskiptavini og stöðugt er unnið með aðilum um allan heim að frekari þróun búnaðarins í samræmi við óskir viðskiptavina.

Þessi vinna setur Fireco í fremstu röð á markaðinum. Margar tilraunir hafa verið gerðar til að líkja eftir framleiðslu og hönnun Fireco en það hefur ekki enn tekist. Það er erfitt að líkja eftir margra ára reynslu, framleiðslu, gæðum og nýjungum sem komið hafa Fireco í fremstu röð.

Bylting varð 1997 í framleiðslu á vatnstönkum fyrir háþrýstislökkvibúnaðinn þegar starfsmenn Fireco tóku á vandamálum á hönnun tanka þeirra tíma. Þeir komust að þeirri niðurstöðu að eftirfarandi skyldi haft í huga:

  1. ÞYNGD: Fireco einingar með PRFV tönkum eru 50% létttari en þær sem gerðar eru úr öðrum efnum (ryðfríu stáli) og opnast þá sá möguleiki að vera með stærri tank með meira vatnsmagni eða meira af búnaði án þess að fara fram úr leyfðri heildarþyngd bifreiðar.
  2. STYRKLEIKI: Samsetning trefjaplasts og þar til gerðra styrkingarefna gera tankinn mun sterkari í samnburði við önnur tankbyggingarefni og því til viðbótar eru viðgerðir mun auðveldari (sömu efni eru notuð í kappaksturbíla, kappsiglingabáta og flugvélar).
  3. BÚNAÐUR/VERÐ: Framleiðslukostnaður PRFV tanka er lægri og hefur því jákvæð áhrif á endanlegt verð á slökkvibúnaðinum.
  4. EITT BYGGINGAREFNI Í TANKINUM
  5. SJÁLFSLÖKKVANDI TANKAR
 
 Fireco trefjaplasttankar  
Stærðir frá 100l. til 2500l., kassalagaðir, L, T eða  ATV lagaðir. Ýmsar gerðir af dælum með bensín eða díeseldrifnum vélum og ýmsum búnaði.
Fireco Kevlartrefjaplasttankar
PRFV TANKAR STYRKTIR MEÐ KEVLAR-KOLTREFJUM
Til í stærðnunum 350, 400, 500 and 600l., L lagaðir. Ýmsar gerðir af dælum með bensín eða díeseldrifnum vélum og ýmsum búnaði.
Fireco ryðfríirstáltankar
RYÐFRÍIR STÁLTANKAR
Til í stærðunum frá 350l. to 1000l., kassalagaðir, L, T lagaðir. Ýmsar gerðir af dælum með bensín eða díeseldrifnum vélum og ýmsum búnaði.
 

 
Fireco háþrýstar dælur

HÁÞRÝSTAR DÆLUR

Háþrýstu dælurnar er hægt að fá með eða án tanks. Afköstin eru mismunandi 50, 70, 80 og 100 L/mín. við 40 og 50 bar – 135 L/mín. við 20 bar - 42 L/mín. við 100 og 150 bar með bensíndrifnum vélum 9, 13 og 18 hestöfl og díesel drifnum vélum 10, 11, 12, 15 og 19 hestöfl. Slöngukeflin eru með háþrýstislöngum í mismunandi lengdum og háþrýstistút. Venjuleg lengd 50 m.

 Fireco froðubúnaður

FIRECO FROÐUKERFI

Þetta nýja froðukerfi leyfir blöndun froðu og léttvatns í hlutföllunum 0.1 til 6%, óháð afköstum. Froðukerfið vinnur fullkomlega í mismunandi löngum slöngum allt að 200 m. Í nýja froðukerfinu blandast froðan í dælunni sem kemur í veg fyrir að blöndunin verði fyrir áhrifum mismunandi þrýstings í kerfinu.

Heildarbæklingur