Dönges verkfæri og búnaður

Home


Verkfæri og búnaður til slökkvi-, björgunarstarfa og  spilliefnaslysavinnu.

 

Neðangreindur búnaður er ekki á lager

Keilur til þéttinga. 20 stk. í setti. 5 stk. 90/25mm., 5 stk. 60/10mm., og 10 stk. 30/10mm. 300mm. langar keilur. Í poka.

Fleygar til þéttinga. 20 stk. í setti. 5 stk. 50mm., 5 stk. 100mm., 5 stk. 150mm. og 5 stk. 200mm. 300mm. langir fleygar. Í poka.

Lekastopp. Lekakítti í 500 ml. dósum. Þéttir leka á ýmsum efnum, eldsneyti, eldsneytisolíum, sýrum, lút kolefnum, hreinsiefnum ofl. 

Plastsekkur til þéttingar m.a. yfir niðurföll og ræsi. Sekkurinn er fylltur af vatni. Þolir ýmis efni. Sekkurinn er 750x750x500mm. Einnig hægt að fá með svamp sem m.a. þolir froðu og er 900x900x20mm. 

Plastpoki eða sekkur sem er fylltur vatni og notaður til að stífla frárennsli, lagnir þar sem leki er . Þolir ýmis efni m.a. eldsneyti ofl. Stærð 700x700mm

Res-Q-Rench sérstakur lykill fyrir slökkviliðsmenn. Fyrir storz tengi, brjóta bílrúður, smeygja undir og halda hurðum eða gluggum og skera öryggisbelti.

Nornakústar. 10 fjaðrir, 50mm breiðar og 330mm. langar. Skaft 2ja m. langt og 28mm í þvermál. Festing við kúst með fluguró. Hægt að skipta um skaft.