Framleiðsla á Anoliti

Við erum komnir með AnB framleiðslubifreið til Reykjavíkur sem sinnt getur framleiðslu á Anoliti annað hvort í viðurkennda sekki eða hlaðið beint í borholu.

Við erum komnir með AnB framleiðslubifreið til Reykjavíkur sem sinnt getur framleiðslu á Anoliti annað hvort í viðurkennda sekki eða hlaðið beint í borholu.AnB Framleiðsla og hleðsla

 

Við erum að stíga fyrstu skrefin hér en vænta má þess að við verðum tilbúnir nú í lok ágúst til að sinna verkefnum fyrir sprengimenn hér á höfuðborgarsvæðinu. Reynslan sýnir að slík blöndun sem þessi og hleðsla beint í borholu er mun áhrifaríkari en að hella úr pokum í holu.

Þéttleiki verður meiri fyrir utan allt það lið sem þarf í kringum hleðsluna. Mannskapur nýtist í önnur verkefni eins og áframhaldandi borun og flutning efnis.

Við höfum hlaðið fyrir nokkra verktaka og árangur er langtum betri. Með notkun á Nonel kveikjum verður árangur ennþá betri.