Hleðsla og framleiðsla á Títan 7000

Fyrir nokkru síðan eða í byrjun sumars hófst framleiðsla á Títan 7000

Fyrir nokkru síðan eða í byrjun sumars hófst framleiðsla á Títan 7000 í jarðgangasprenginum hérlendis. Títan er framleitt af tveimur gerðum annars vegar fyrir venjulegar sprengingar á jörðu og svo jarðgangasprengingar.

Hér er verið að gera Mini SSE hleðslutæki klártBúnaður við framleiðslu og hleðslu er af nokkrum gerðum og í mörgum tilfellum er smíðaður sérstakur búnaður í verkefnin.

Helstu kostir Títans er aukið öryggi þar sem framleiðslan er á staðnum og dælt beint í borholu.

Verulega jákvætt gagnvart umhverfi en það styttir lofthreinsunartíma eftir skot. Lítið af eitruðum sprengigösum myndast við sprengingu. Mun minna en af öðrum sprengiefnum.

Hér er allt orðið klárt fyrir flutningin í göngin

Enginn flutningur eða geymsla á sprengiefnum. Vinnusparandi. Gott vatnsþol og auðvelt í meðförum. Hleðsla og skömmtun efnisins auðveld. Skráning notkunar einföld. Efnismagni er stýrt með tölvubúnaði og ákveðinn skammtur í hverja holu jafnvel í kontúrholurnar. Engin þörf á öðrum gerðum sprengiefna. Engan þráð eða rör í kontúrholur bara Títan 7000. Títan 7000 fer í allar holur en í mismunandi magni. Hægt er að setja minnst 350 g/m. í borholu.

Síðasta yfirferð. Allt þarf að virka vel.

Hægt er að koma hleðslubúnaði á bifreið eða jafnvel borvagn allt eftir stærð búnaðar og kröfum.

Mikið atriði er að halda upplausninni yfir eða við 10°C og er hún því geymd innanhúss í geymslutanki. Sama á við um tilsetningarefni. Flutningur efnisins er annað hvort í stórum tönkum eða minni tönkum í gámum. Dælt er svo á milli.


Hlaðið úr körfunni
Þéttleikinn er 0.90 til 1.20 kg/dm3. Rúmmálsstyrkur 81 til 108%. Sprengihraði 4.300 til 4.800 m/sek. Rúmtak í lofti um 940 l/kg. Efnið flokkast sem 5.1 ADR.

Reynslan af aðfreðinni sem komið er hérlendis er frábær. Mikið vatn hefur verið í göngunum og hleðsla erfið en þessi aðferð hefur skilað sínu. Verktaki hefur sagt að hér eftir muni hann ekki nota annað efni við jarðgangagerð.

Gengið frá síðustu holunum

Til að geta notað efnið þarf að fara á námskeið til þess að læra á hleðslubúnað og meðhöndlun efnisins. Eins þarf að sækja um nauðsynleg leyfi til Vinnueftirlits ríkisins.

Sjá nánari upplýsingar.