Höfum flutt verslun okkar um set...


Núna um miðjan mánuðinn fluttum við verslunina okkar um nokkra metra til vesturs. Við stækkuðum húsnæðið um 300 m2 um áramótin síðustu og erum fyrst nú að taka það í notkun. Við erum með aðalverslunina á 150 m2 á neðri hæðinni og svo 100 m2 sýningarsvæði á efri hæðinni fyrir sérstakar vörur fyrir sprengiefnaverktaka, slökkvilið, sjúkralið og björgunarsveitir.

Það er ekki allt tilbúið sem komið er en verður það vonandi mjög fljótlega.

Sundaborg 7

Búðin er í dag lengst til hægri. Merkingar verða settar upp fljótlega. Þar sem búðin var áður (lengst til vinstri) verður sett lagerhurð og verður aðalmóttaka vara þar.