Upphreinsiefni í ýmsum gerðum komin

Við höfum tekið á lager frá Liyang Chemicals uppsogsefni í klútum, koddum, rúllum, sokkum og settum


Liyang Chemicals framleiðir ýmsar gerðir af uppsogsefnum. Efnin eru flokkuð í þrjár gerðir MOS, HOS og BOS gerðir. Við bjóðum til að byrja með þær tvær fyrrnefndu. BOS (hvít) gerðin er eingöngu til að hreinsa upp olíur og olíublöndur. MOS (grá) hreinsar upp ýmis spilliefni ásamt olíum. HOS (gul) hreinsar upp ýmis eiturefni og olíur.

Uppsog er allt að fimmtán til tuttuguföld þyngd efnisins. Ekki til að hreinsa upp úr vatni. Sérstaklega styrkt efni með mikinn teyjanleika og leysist ekki upp eða rifnar við notkun. Þriggja laga með sérstakri yfirborðsstyrkingu.

Vörurnar komu hingað í síðustu viku og höfum við nýlokið við að setja upplýsingar inn á heimasíðuna en hana má finna undir Ýmsar vörur - upphreinisefni eða hér.

Við gerum ráð fyrir að þessar vörur henti mjög vel fyrir slökkviliðin, iðnað og í vertakastarfsemi þar sem mikið er um vélar og hætta fyrir hendi að olíur eða önnur spilliefni fari niður.