Verðhækkun á sprengiefnum

Verðhækkun hjá birgja okkar Dyno Nobel er ákveðin nú 14. apríl næstkomandi. Samkvæmt upplýsingum hjá þeim er ekki komist hjá þessum verðbreytingum.


Það þarf auðvita ekki að velta því fyrir sé að slík verðhækkun sem þessi, kemur sér afar illa bæði fyrir okkur og viðskiptavini okkar. Við erum að skoða og samræma við fall krónunnar, hvernig við getum mildað þessa verðhækkun, en hún er þó nokkur, eða allt frá 8% til 18% eftir gerðum.

Okkar von var að styrking krónunnar, þar til fyrir hálfum mánuði væri til frambúðar, en útlit er fyrir að svo sé ekki og við nánast í sama farinu og um miðjan janúar.

Við vekjum athygli viðskiptavina okkar að vera í sambandi við okkur eftir páska en þá munu nýir verðlistar vera gefnir út.