Verðlækkun á sprengiefnum

Eins og við skýrðum frá var það ætlun okkar að lækka verð á sprengiefnum nú um mánaðarmótin. Lækkunin tekur gildi í dag.


Verði um frekari styrkingu á íslensku krónunni munum við endurreikna verð okkar í samræmi við þær breytingar.

Því miður tókst okkur ekki að fresta þeim verðhækkunum sem við fengum á okkur frá birgja okkar um áramót eins og við höfðum vonir um.