Öflugasta og stærsta slökkvibifreiðin komin á Reykjavíkurflugvöll

Undirvagn er af gerðinni MAN 27.414 DFAC 6x6 410 hestafla vél. Sexhjóla, sjálfskiptur, drifin með sídrifi, driflæsing framan og aftan, ABS hemlum, einfalt ökumannshús með rými fyrir 2 menn þar af 1 í stól með reykköfunartækjum.


Fyrir utan skrifstofur okkar


Í yfirbyggingu sem er smíðuð úr áli og plasti er 7.900 lítra vatnstankur og 790 l. froðutankur, Rosenbauer NH40 brunadæla með afköst 4.000 l. við 10 bör og 3. m. soghæð. Dælan skilar 4.500 l/mín við 8 bara þrýsting





Bakhlið

Á þaki er Rosenbauer RM60E fjarstýrður úðastútur sambyggður fyrir froðu og vatn sem skilar 4 til 6.000 l/mín.

ROSENBAUER RM8E fjarstýrður úðastútur sambyggður fyrir froðu/vatn sem afkastar 1.000 l. af vatni á mínútu er framan á ökumannshúsi. Úðastútar eru svo undir bifreiðinni til varnar henni sjálfri.

Úttök á dælunni eru: fyrir vatnsbyssur á þaki og framan, á háþrýstislöngukefl, tvö úttök með sjálfvirkum lokum sem opna fyrir vatn þegar slanga er dregin út en þessi búnaður sparar bæði tíma og mannskap. Fix-Mix froðublandari með stillanlegri blöndun er sambyggður dælunni.

UNIPOWER 4kW 220 V rafall er beintengdur við vél bifreiðarinnar. Einnig er í bifreiðinni: loftknúið ljósamastur 2 x 1000W, miðstöð sem heldur hita í skápum ásamt hitaelementi í vatnstank.



Ýmsar innréttingar og búnaður er í bifreiðinni eins og reykköfunarstóll í farþegasæti, Spiromatic 323 reykköfunartæki (2 sett) eða Svaox fjarskiptabúnaði, HOLMATRO lyftipúðar háþrýstir og lágþrýstir, WIMUTEC björgunarsög, RAMFAN reykblásari, slöngurekkar fyrir





GUARDSMAN (ARMTEX) 42mm. (gular), 3” (bláar) og 4” brunaslöngur, greinistykki, hillur, verkfæraveggir, útdraganlegar festingar fyrir reykköfunartæki og kúta, NOR 10m. brunastigi, sogbarkar, ROSENBAUER CASTEK úðastútar, UNIFIRE úðastútar, FLEXI Vinnupallastigi, ROSENBAUER 135 kg. duftkúla, TOTAL froðustútur, JOCKEL slökkvitæki, ýmis konar handverkfæri ofl. ofl.