Aukin verkefni hjá

Nú undanfarið hafa aukist all verulega verkefni hjá \"Gömlu Dömunni\" eins og við köllum Anolit blöndunar og hleðslubifreið okkar sem við erum með hér á suðvestur horninu. Við erum með aðra bifreið á Austurlandi sem hefur sinnt verkefnum þar sem hafa verið all nokkur og fyrirsjáanleg veruleg aukning í sumar.
Nú undanfarið hafa aukist all verulega verkefni hjá "Gömlu Dömunni" eins og við köllum Anolit blöndunar og hleðslubifreið okkar sem við erum með hér á suðvestur horninu. Við erum með aðra bifreið á Austurlandi sem hefur sinnt verkefnum þar sem hafa verið all nokkur og fyrirsjáanleg veruleg aukning í sumar.

AnB Framleiðsla og hleðslaÞar sem notendum hefur fjölgað talsvert og bifreiðin aðeins ein þurfum við að biðja ykkur að hafa fyrirvara á pöntunum svo við getum uppfyllt óskir allra. Það er geysilegur ávinningur af þessu fyrirkomulagi og það er ekki eingöngu að engir eða afar litlir sprengiefnaflutningar eiga sér stað með tilheyrandi tíma og kostnaði heldur er nýting og árangur miklu betri en með niðurhellingar aðferðinni.

Þéttleiki verður meiri fyrir utan allt það lið sem þarf í kringum hleðsluna. Mannskapur nýtist í önnur verkefni eins og áframhaldandi borun og flutning efnis.

Við höfum hlaðið fyrir nokkra verktaka og árangur er langtum betri. Með notkun á Nonel kveikjum verður árangur ennþá betri.

Ávinningur af notkun AnB framleiðslu og hleðsluaðferðar er í stuttu máli.

  • Mikið öryggi
  • Enginn sprengiefnalager
  • Verulega dregið úr flutningi á sprengiefnum
  • Fyrirfram ákveðin hleðsla í holu
  • Meiri hleðsluafköst
  • Nákvæm hleðsla með lágmarks mannskap
  • Nákvæm skýrslugerð
  • Vatnslosunarmöguleikar
  • Engir sprengiefnaafgangar
  • Engar umbúðir til að vandræðast með


Þessi bifreið getur bæði hlaðið í stórsekki eða beint í tilbúnar borholur. Lesið um árangur og aðferðir í fyrri fréttum.

Sjá Hleðsla og framleiðsla á Anoliti

Sjá Hleðsla og framleiðsla á Anoliti heldur áfram

Gamla daman