Endurprentun á rauðu Dyno bókinni

Við höfum látið endurprenta rauðu Dyno bókina um sprengiefni og sprengitækni. Þessi bók er uppfull af upplýsingum til notkunar við sprengiefnavinnu. 





Bókin var gefin út 1981 og eru í henni margvíslegar upplýsingar um sprengiefni, aðferðir, bormunstur, útreikninga, öryggi, jarðgangagerð, námuvinnslu, sprengingar undir vatni, reiknitöflur, dæmi ofl. ofl.

Nokkurs konar Biblía þeirra sem vinna við og að sprengingum.








Eðlilega er er þar líka upplýsingar um sprengiefni og kveikjur sem eru ekki lengur á markaði en upplýsingarnar má þó nýta.

Við eigum eins og áður sagði nokkur eintök og viljum biðja þá viðskiptavini okkar sem áhuga hafa á að hafa samband við okkur ef þeir vilja eignast eintak.