Hækkun á verði sprengiefna

Á næstu dögum mun verð á sprengiefnum, kveikjum  og fylgihlutum hækka. Okkur hefur verið tilkynnt um hækkun verðs frá birgja og er hún mjög mismunandi eftir gerðum.
Á næstu dögum mun verð á sprengiefnum, kveikjum  og fylgihlutum hækka. Okkur hefur verið tilkynnt um hækkun verðs frá birgja og er hún mjög mismunandi eftir gerðum.

Til viðbótar þeim hækkunum þá eru bókstaflega allir sem selja okkur þjónustu að hækka sínar verðskrár eins og flutningsaðilar og aðrir þjónustuaðilar við verslunina.

Sá gjaldmiðill sem við kaupum mest inn í hækkaði um rúm 22% á síðasta ári en hækkun okkar á sprengiefnum á síðasta ári var aðeins rúm 7% sem var í maímánuði síðastliðnum þegar gengið féll eins og við leyfum okkur að kalla það.

Við verðum að bregðast við og munum hækka verð að líkindum í næstu viku og verður hækkunin mismunandi eftir gerðum og vörum. Við munum tilkynna það þegar þar að kemur.