Ný gerð af Nonel LP kveikjum fyrir jarðgangagerð

Frá Orica Mining Service (Dyno Nobel) er komin ný gerð af Nonel LP kveikjum sem hefur fleiri númer þ.e. 32 númer í stað 24 númera.

Eldri gerðin hafði eins og áður sagði 24 númer en nú bjóðast 32 númer. Lægsta númerið er LP0 með seinkun upp á 25 ms og hæsta númerið er LP6000 með seinkun upp á 6000 ms.

Lægsta númerið og hæsta númerið er eins og í eldri gerðinni en fleiri númer eru á milli sem gefur meiri möguleika á  fleiri seinkunum.

Vegna þessa má ekki blanda saman þessari nýju gerð og þeirri eldri. Seinkanir geta skarast.

Í bæklingi sem þið getið lesið með að smella á myndina koma fram frekari upplýsingar um seinkunarmöguleika og fleira.