Nýjar gerðir af uppsogsefnum komin

Í júlí fengum við meira og eins fjölbreyttara úrval af MOS uppsogsefnum en þau hafa fengið góðar viðtökur.


Liyang Chemicals framleiðir ýmsar gerðir af uppsogsefnum. Efnin eru flokkuð í þrjár gerðir MOS, HOS og BOS gerðir. Við bjóðum til að byrja með þær tvær fyrrnefndu. BOS (hvít) gerðin er eingöngu til að hreinsa upp olíur og olíublöndur. MOS (grá) hreinsar upp ýmis spilliefni ásamt olíum. HOS (gul) hreinsar upp ýmis eiturefni og olíur.

Uppsog er allt að fimmtán til tuttuguföld þyngd efnisins. Ekki til að hreinsa upp úr vatni. Sérstaklega styrkt efni með mikinn teyjanleika og leysist ekki upp eða rifnar við notkun. Þriggja laga með sérstakri yfirborðsstyrkingu.

MOS gerðin er ætluð þar sem olía hefur lekið og spilliefni í vökvaformi. T.d. í verksmiðjum, ýmsum iðnaði, verkstæðum. Við ýmis tæki og búnað þar sem vænta má leka. Spilliefni eins og kælivökva, uppleysiefni, jafnvel sýrur og basa.

Allar upplýsingar um upphreinsiefni má lesa hér.

Af gerðinni MOS-SOCK 7612 sem eru sokkar eða pulsur sem við höfum verið með 1,2 m. langar fengum við nú 3,6 m. langar. 7,6 sm. í þvermál. 7 sokkar í kassa.


Eins fengum við uppsogsefnið MOS-PUL  í pokum til að dreifa yfir svæði sem hreinsa á. Pokarnir eru með 8 kg. af efninu.





.....Slökkvitæki, slökkvitækjaþjónusta, reykskynjarar, eldvarnateppi, brunaslönguhjól, gaskynjarar, kolsýrlingsskynjarar, fellistigar, keðjustigar, lyfjaskápar, neyðarljós, neyðarmerki.....