Öflug sprenging við Kárahnjúka

Verktakafyrirtækið Arnarfell á Akureyri framkvæmdi í dag stærstu sprenginguna til þessa við gerð Kárahnjúkastíflu. Um sjö tonn af kjarna og 300 kg af dýnamíti voru notuð við sprenginguna og var hún mjög öflug eins og sjá má á myndinni hér til hliðar.

Verktakafyrirtækið Arnarfell á Akureyri framkvæmdi í dag stærstu sprenginguna til þessa við gerð
Kárahnjúkastíflu. Um sjö tonn af kjarna og 300 kg af dýnamíti voru notuð við sprenginguna og var hún mjög öflug eins og sjá má á myndinni hér til hliðar.

Með þessu voru sprengdir upp í kringum 20 þúsund rúmmetrar af jarðvegi. Verið er að vinna við gerð sneiðings niður í gilið við Innri-Kárahnjúk. Sneiðingurinn á að liggja að efri enda hjáganganna tvennra sem Jökulsá á Dal verður veitt um meðan á gerð Kárahnjúkastíflu stendur.

Frekari frétt er á fjórðu síðu Morgunblaðsins ásamt myndum. Það sem nefnt er kjarni í þessari frétt er Anolit Extra og Anolit Extra Alumium sem eru sprengiefni frá Dyno Nobel ASA.

Vídeómynd af sprengingunni Hér

ATHUGIÐ, að vegna umfangs myndarinnar, sem er óklippt, getur tekið nokkrar mínútur að hlaða myndina inn á tölvuna.