Rafmagskveikjur á útleið hjá okkur

Eins og áður hefur komið fram nota flestir og nánast allir sprengiefnaviðskiptavinir okkar Nonel kveikjur. Það er staðreynd að Nonel kveikjukerfið er mun hagstæðara og einfaldara í notkun en rafmagnskveikjurnar.

95% okkar viðskiptavina hafa alfarið skipt yfir í Nonel þar sem þeir hafa áttað sig á muninum. Að verki loknu hvort sem það var skurðasprenging eða pallsprenging er sparnaður verulegur þegar allt er haft í huga, mokstur, mölun eða annar frágangur.

Við höfum því ákveðið að hætta að vera með rafmagnskveikjur á lager og bjóða eingöngu Nonel kveikjur í fleiri útfærslum en áður og vera með meira magn á lager.

Við munum auðvita aðstoða þá sem óska eftir að kaupa rafmagnskveikjurnar áfram með að flytja sérstaklega inn fyrir þá en því fylgir einfaldlega hærra verð og lengri afgreiðslutími.

Til að aðstoða þá sem vilja taka skrefið og nota Nonel munum við bjóða hnalla á hagstæðu verði og mæta viðkomandi með magnafslætti til að byrja með.

Hér eru frekari upplýsingar um Nonel kveikjur.