Síðasta sprengifrétt ársins

Nú líður að áramótum. Við viljum þakka viðskiptavinum okkar fyrir viðskipti, samstarf og samvinnu á árinu. Þetta ár var annríkt og að sama skapi árangursríkt. Það getum við þakkað viðskiptavinum og starfsmönnum.

Viðskiptavinir okkar í sprengiefnum hafa  ekki verið eins fjölmennir um  langan tíma sem nú og var  mikið um nýjungar  á árinu.

Vel var tekið á móti blöndun og dælingu á staðnum á staðnum hér á suðvesturhorninu en við höfum nú frá árinu 2003 verið með þá starfsemi á Austurlandi vegna hinna stóru framkvæmda þar.

Nýjungar komu fram við jarðgangagerð en við höfum lengi beðið þess að koma með blöndurnar og dælubúnað fyrir Titan efnið til notkunar við jarðgangagerð. Nú er búnaðurinn í notkun bæði í Kárahnjúkum og Héðinsfjarðagöngum.

Við munum á nýju ár leggja okkur fram við að sinna viðskiptavinum okkar og vonumst eftir ánægjuríku samstarfi og samvinnu.

Gleðilegt ár.