Starfsemin í Ufsárveitum

Undanfarið höfum við verið við blöndun og framleiðslu á Anoliti fyrir Arnarfell í Ufsárveitu. Þar erum við einnig með framleiðslu og blöndunarbúnað á Titan í jarðgöngunum sem verið er að gera þar.

Góður gangur er við byggingu Ufsárveitustíflu.

Arnarfellsmenn útbjóu sig með Titan hleðslu og blöndunarbúnaðinn á léttan MB vörubíl með drifi á öllum hjólum. Styttu pall og gerðu við það bílinn mun meðfærilegri við vinnu í göngunum.

Í pallsprengingum og við öflum efnis í stíflurnar er m.a. notað Anolit sprengiefni sem blandað er á staðnum af okkur í annarri af þeim tveimur bifreiðum sem við höfum til þeirra nota.

Sjá myndir.